Fara í efni

Fjárhagsáætlun 2023 – 2026

09.11.2022 Fréttir

Fjárhagsáætlun Múlaþings fyrir árið 2023 ásamt 3ja ára áætlun fyrir 2024-2026 lögð fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn Múlaþings á fundi þann 9. nóvember 2022 og hefst fundur kl.14.00. Seinni umræða er áætluð þann 14. desember 2022. Var áætlunin afgreidd af byggðaráði þann 7. nóvember og henni vísað til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

Þriggja ára áætlun er hluti af þeirri áætlun sem hér er lögð fram.

Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar 2023-2026

  • Rekstrarafkoma A og B hluta samkvæmt fyrirliggjandi tillögu til fyrri umræðu er jákvæð á árinu 2023 um 165 millj. kr. En afkoma af rekstri A hluta er neikvæð um 182 millj. kr.
  • Skatttekjur hækka um 458 millj. kr. á milli ára ef miðað er við útkomuspá fyrir árið 2022 og nema 6.653 millj. kr. sem er 7% hækkun.
  • Útsvarstekjur nema 3.643 millj. kr. og hækka 6,4% miðað við útkomuspá fyrir árið 2022.
  • Áætlað er að fasteignaskattur nemi um 753 millj. kr. sem er 14,7% hækkun frá 2022.
  • Framlög Jöfnunarsjóðs nema 2.189 millj. kr. sem er 7% hækkun frá áætlaðri útkomu 2022.
  • Í útkomuspá launa fyrir árið 2022 er áætluð niðurstaða A hluta um 4.404 millj. kr. en verða um 4.705 millj. kr. á árinu 2023 sem gerir um 7 % hækkun á milli ára.
  • Framlegð (EBITDA) í A hluta er áætluð 654 millj. kr. eða 8,7% og í samstæðu A og B hluta er framlegð áætluð 1.371 millj. kr. eða 15,7%.
  • Fjárfestingar A hluta nemi 540 millj. kr. nettó samkvæmt forsendum áætlunar
  • Fjárfestingar B hluta nemi um 1.896 millj. kr nettó samkvæmt forsendum áætlunar.

Nánar má sjá fyrirliggjandi áætlun

Nánari upplýsingar veita Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings, og Guðlaugur Sæbjörnsson, fjármálastjóri Múlaþings.

Fjárhagsáætlun 2023 – 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?