Fjölmargt hefur verið á dagskrá hjá Múlaþingi síðustu mánuði, bæði í stjórnsýslu sveitarfélagsins og úti í samfélaginu. Í skýrslu sveitarstjóra á síðasta sveitarstjórnarfundi þann 9. september var farið yfir helstu verkefni sumarsins, hafnarmál, menningarstarf og mannauðsmál, auk þess sem litið var til þess sem fram undan er í haust.
Áhersla á hafnir og ferðaþjónustu
Hafnarmál hafa verið ofarlega á baugi síðustu vikur. Framkvæmdir við lengingu Strandarbakka á Seyðisfirði hefjast á næsta ári og nú stendur yfir hönnunarfasi hjá Vegagerðinni. Framkvæmdin er afar mikilvæg fyrir áframhaldandi uppbyggingu og markaðssetningu hafnarinnar með tilliti til móttöku skemmtiferðaskipa.
Á Borgarfirði stendur yfir endurnýjun gömlu löndunarbryggjunnar og jafnframt er verið að skoða endurnýjun á stigum í Hafnarhólma.
Múlaþing tekur einnig þátt í samstarfi innan Cruise Iceland þar sem skoðaðir eru möguleikar á að lengja þann tíma sem skemmtiferðaskip heimsækja hafnir á Íslandi og lengja þannig ferðamannatímabilið.
Sveitarstjóri fór til Aberdeen í Skotlandi í ágúst til að ræða möguleikann á föstum ferjusiglingum milli Seyðisfjarðar og Aberdeen. Um langtímaverkefni er að ræða en allir aðilar eru áhugasamir og ekki ástæða til annars en bjartsýni.
Þann 26. ágúst var kjörnum fulltrúum og öðrum hagaðilum boðið í heimsókn um borð í skemmtiferðaskipið Aida Luna í höfn á Seyðisfirði. Þar fór fram gott samtal um mikilvægi stöðugleika og fyrirsjáanleika í gjaldtöku á skemmtiferðaskip. Ljóst er að nokkur samdráttur verður í skipakomum á næsta ári sem er afleiðing af innviðagjaldi sem innleitt var með of skömmum fyrirvara á síðasta ári. Einnig er ljóst að skipafélög sem leggja stund á hringsiglingar draga verulega úr komum í hafnir Múlaþings vegna nýrra reglna um virðisaukaskatt.
Áhyggjur af áhrifum hækkunar baðlónaskatts
Nokkuð hefur verið rætt um fyrirhugaða hækkun baðlónaskatts og möguleg áhrif hennar á starfsemi Vök Baths og samfélagið í Múlaþingi. Stjórnendur Vakar hafa bent á að hækkunin gæti leitt til þess að loka þurfi starfseminni hluta úr ári og að framkvæmdum verði frestað.
Sveitarstjóri og framkvæmdastjóri Vakar skrifuðu sameiginlega grein þar sem þessari skattahækkun var mótmælt og einnig var tekið viðtal við sveitarstjóra um málið.
Valaskjálf mikið til umræðu
Málefni Valaskjálfar hafa verið fyrirferðarmikil að undanförnu. Mögulegar breytingar á hlutverki samkomusalarins hafa vakið mikla umræðu á Egilsstöðum, enda hefur salurinn lengi gegnt mikilvægu hlutverki í félags- og menningarlífi svæðisins.
Á íbúafundi sem haldinn var í Sláturhúsinu á Egilsstöðum 6. september kom skýrt fram að áhugi er á að halda salnum áfram sem samkomusal, þótt skoðanir væru skiptar um hvert hlutverk sveitarfélagsins ætti að vera í málinu.
Menning og mannlíf í blóma
Menningarlífið hefur verið líflegt í Múlaþingi í sumar. Meðal stærri viðburða voru Bræðslan á Borgarfirði, Ormsteiti á Héraði og öflug dagskrá Hinsegin Austurlands.
Tónlistin hefur einnig skipað stóran sess, meðal annars með tónleikaröðunum Bláu kirkjunni, Tónlistarstundum á Héraði og Langt út / Far out í Sláturhúsinu. Leikhópurinn Lotta heimsótti jafnframt alla byggðarkjarna Múlaþings með barnasýninguna Litaland, en sveitarfélagið styrkir verkefnið til að tryggja börnum í Múlaþingi tækifæri til leikhúsupplifunar í heimabyggð.
Á Seyðisfirði var sumarsýning Skaftfells Roman Signer: Íslensk verk opnuð 4. júlí og á Borgarfirði opnaði sýningin Allt fyrir utan Hafnarhúsið í Glettu 15. ágúst. Verkið Afturgöngur var sýnt í Tækniminjasafni Austurlands á Seyðisfirði og minjasvæðið í Firði á sama stað fékk andlitslyftingu með nýjum áningarstað, bílastæðum og göngustíg.
Fjölbreytt samfélagsstarf
Forsetahjónin heimsóttu Múlaþing nokkuð óvænt í sumar og var dagskráin fjölbreytt, frá Stuðlagili og Hákonarstöðum á Jökuldal til Borgarfjarðar þar sem þau sóttu tónlistarhátíðina Bræðsluna og loks til Egilsstaða. Heimsóknin gaf tækifæri til að kynna forsetahjónunum fjölbreytta starfsemi og menningarlíf sveitarfélagsins.
Byggðaráð Múlaþings hélt sinn fyrsta staðfund á kjörtímabilinu á Seyðisfirði í júlí og kynnti sér meðal annars fyrirhugaðar framkvæmdir í Herðubreið þar sem bókasafnið og skrifstofa sveitarfélagsins munu flytja inn innan tíðar.
Forsætisráðherra heimsótti Djúpavog í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst og var þar með vel sóttan hlustunarfund.
Starfsdagur stjórnsýslunnar fór fram í byrjun september þar sem unnið var að starfsáætlanagerð teyma. Markmiðið er að efla fókus og samhæfingu í stjórnsýslunni og stuðla þannig að enn betri þjónustu við íbúa.
Mánudaginn 7. september fór síðan fram árlegur vinasveitarfélagafundur Múlaþings, Norðurþings, Skagafjarðar og Borgarbyggðar, sem að þessu sinni fór fram í Borgarnesi en þangað mættu þrír sviðsstjórar úr stjórnsýslunni ásamt sveitarstjóra.
Margt fram undan í haust
Dagskrá næstu vikna er þétt. Meðal verkefna er áframhaldandi vinna vegna fyrirhugaðra breytinga á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga, en enn ríkir óvissa um framtíð verkefna og starfsmannamála.
Þá verða Lýðheilsuvísar 2026 kynntir á Egilsstöðum 16. september og 60 ára afmælishaustþing SSA verður haldið í Neskaupstað 17.–18. september. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga fer fram á Akureyri síðar í mánuðinum og fjármálaráðstefna sveitarfélaga verður í Reykjavík í október.
Menningarstarfið heldur einnig áfram af fullum krafti. Tónleikaveisla verður í Sláturhúsinu í september og sýningin Afrakstur ævinnar, yfirlitssýning á verkum Guðrúnar Sigurðardóttur, verður opnuð. Þá fer BRAS, menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi, af stað um miðjan september með fjölbreyttri dagskrá í skólum og menningarstofnunum.
Haustið fer því af stað með fjölbreyttum verkefnum og viðburðum víðs vegar um Múlaþing og áfram verður unnið að því að efla samfélagið, þjónustu sveitarfélagsins og þau tækifæri sem felast í byggðarlaginu.