Í dag er degi leikskólans fagnað víða um land og er það engin undantekning í Múlaþingi. Hver leikskóli gerir það þó með sínu nefi.
Vöfflur og notalegheit í Fellabæ
Í gær var foreldrum og aðstandendum barna á Hádegishöfða í Fellabæ boðið í heimsókn í leikskólann og að gæða sér á dýrindis vöfflum með krökkunum. Í leikskólanum var skemmtileg gestabók þar sem hægt var að skilja eftir handafar gesta og barnanna og svo var hægt að fara í leik inn á deild. Börnin höfðu gaman af því að kynna umhverfi leikskólans fyrir sínum nánustu.
Í Fellabæ voru börnin á Hádegishöfða spurð að því af hverju þau væru í leikskóla og það stóð ekki á svörum:
,,Af því að ég er svo lítill“ 5 ára strákur.
,,Út að ég ætla að vera stór“ 4 ára strákur.
Þegar börnin voru spurð að því hvað það er sem þau læra í skólanum sögðu þau:
,,Að lita og við lærum að byggja“ 5 ára strákur.
,,Að stjórna sér og leika okkur“ 4 ára stelpa.
,,Læra í bók, fletta í bók og lesa bók“ 4 ára strákur.
Pönnukökur og listsýning á Borgarfirði
Á Borgarfirði fögnuðu leikskólabörnin í Glaumbæ með grunnskólabörnunum og starfsfólki skólanna. Þau gæddu sér á rjómapönnukökum og kíktu svo í sal þar sem farið var í þrautabraut. Að því loknu var ferðinni haldið í Búðina þar sem börn af báðum skólastigum settu upp listasýningu sem mun standa út febrúar. Þema sýningarinnar er ,,Himininn“ og eru íbúar og gestir sveitarfélagsins hvattir til að kíkja við í Búðinni og skoða sýninguna.
Kaka og samvera á Djúpavogi
Börnin á Bjarkartúni á Djúpavogi buðu foreldrum og sínum nánustu í kaffi og köku og áttu notalega samveru í skólanum.
Á Djúpavogi voru nokkur börn tekin tali og þau spurð af hverju þau væru á leikskóla og þeirra svör voru:
,,Út af því ég vinn þar, nei djók“4 ára stelpa.
,,Til að leika okkur. Það er miklu skemmtilegra dót í leikskólanum en heima hjá mér“ 4 ára stelpa.
Þá voru þau spurð út í það hvað þeim þætti skemmtilegast í leiksólanum:
,,Að leika með bíla og dúkkur“ 3 ára stelpa.
,,Vera þjóninn, leika með dótið og mála, ég elska að mála“ 4 ára stelpa.
,,Að leika við krakkana mína.“ 4 ára strákur.
Það var ýmislegt sem börnin sögðust svo læra í leikskólanum:
,,Ég lærar að búa til leir og hvernig á að láta hann vera ekki klístraðan“ 3 ára stelpa.
,,Að klippa og ekkert meira held ég“ 4 ára stelpa.
,,Maður lærir ýmislegt, fara í Tjaldastarf“ 5 ára strákur.
Þegar þau voru spurð að því hvað væri mikilvægast í leikskólanum voru svörin jafn ólík og þau voru mörgu og sögðu börnin meðal annars:
,,Að fara í skólaheimsókn“ 5 ára strákur.
,,Að fá að borða hafragraut og leika og vera vinir.“ 4 ára stelpa.
,, ööömmm... að perla“ 3 ára stelpa.
Heimsókn til sveitarstjóra á Egilsstöðum
Þá heimsóttu elstu börn úr Tjarnarskógi á Egilsstöðum bæjarskrifstofurnar að Lyngási og sátu fund með Dagmar Ýr sveitarstjóra í tilefni dagsins. Á fundinum var ýmislegt rætt og var nafn sveitarstjóra fyrsta mál á dagskrá. Eitt barnanna var á því að sveitarstjórinn hlyti að heita Halla Tómasar á meðan annað velti fyrir sér ástæðu þess að stelpa héti Dagmar.
Sveitarstjóri fór yfir það með börnunum hvaða svæði tilheyrði Múlaþingi og þekktu þau sveitirnar og kjarnana, höfðu mörg hver séð lundann, gengið regnbogagötuna, kíkt á eggin í Gleðivík og einhverjir foreldrar höfðu verið í leikskóla í Fellabæ. Þegar Dagmar minntist á sushi á Seyðisfirði vakti það litla hrifningu í hópnum en þau könnuðust þó mörg við að foreldrar sínir leggðu sér slík matvæli til munns.
Þegar sveitarstjóri sagði þeim að eggin í Gleðivík væru nánast jafnstór og hún sjálf mátti heyra ,,Ó mæ!“ sem hver og einn verður að túlka sjálfur.
Þá sagði Dagmar þeim frá hamrinum sem er í fundarsalnum, að hann væri eftir Hlyn á Miðhúsum og að forseti sveitarstjórnar notaði hamarinn til þess að setja og slíta fundi. Það mætti þó alls ekki nota hann til að hengja neitt upp á veggi. Hamarinn var svo látinn ganga og fengu krakkarnir allir að prófa gripinn.
Krakkarnir voru spurðir að því hvernig væri að búa í Múlaþingi og hvort það væri eitthvað sem þau vildu sjá betur fara. Það stóð að sjálfsögðu ekki á svörum og voru þau sammála því að það væri fínt að búa í sveitarfélaginu en þó mætti bæta það enn frekar með:
- Gangbrautarljósum
- Dekkjarólu í Tjarnargarðinum
- Skemmtigarði
- Sirkus
- Handboltaæfingum
- Stærri rennibraut í sundlaugina
Í framhaldinu útskýrði sveitarstjóri fyrir þeim hvert hlutverk sveitarfélagsins væri og hvert væri sniðugt að beina sumum af þessum tillögum.
Þegar sveitarstjóri hafði sagt börnunum hvað hún gerði í starfi sínu lýstu þau því fyrir henni hvernig dagarnir væru í leikskólanum. Þar sem Dagmar ólst upp í sveit fékk hún aldrei að upplifa það að vera í leikskóla á eigin skinni.
Að lokum sungu börnin tvö lög fyrir sveitarstjóra og starfsfólk skrifstofunnar og héldu svo út í daginn mett eftir safa, ávexti og kextilbúin að taka á móti foreldum og aðstandendum sem kíkja á leikskólann seinna í dag í kaffi og skúffuköku. Þá ætla krakkarnir að sýna þeim handverk sem þau hafa unnið og fara í val með þeim.
Á leikskólunum á Egilsstöðum voru börnin einnig spurð út í starf leiksólanna. Þegar þau voru spurð út í það af hverju þau væru í leikskóla sögðu þau meðal annars:
,,Út af því að ég þarf að þroskast til að fara í grunnskóla“ 3 ára stelpa.
,,Af því að ég elska leikskólann“ 3 ára stelpa.
,,Af því ég bara, get ekki verið heima því annars fara fullorðnir án þín“ 3 ára stelpa.
,,Svo mamma og pabbi komi að sækja mig“ 3 ára stelpa.
Spurð út í það hvað þeim þætti skemmtilegast sögðu þau:
,,Leika í símaleik“ 3 ára stelpa.
,,Að leika með dót og playmo“ 3 ára strákur.
,,Skrifa og leika mér“ 3 ára stelpa.
,,Gera snjókall“ 3 ára stelpa.
,,Leika mér við vin minn“ 3 ára strákur.
,,Fara í salinn út ag þvú að það er hægt að leikak með bolta og dýnur og þar er klifurgrind til að klifra í“ 3 ára stúlka.
Það sem þau læra í leikskólanum segja þau vera:
,,Ekki meiða og ekki hafa hávaða. Það á að leika saman“ 3 ára stelpa.
,,Flæði og hlusta“ 4 ára stelpa.
,,Eitthvað hljóðfæri, læra að borða mikið af disknum“ 3 ára strákur.
,,Lubba og vera í samveru“ 3 ára stelpa.
Mikilvægast í leikskólanum þykir þeim:
,,Að leika sér saman“ 3 ára stelpa.
,,Að sofna kyrr“ 3 ára strákur.
,,Góður matur“ 4 ára stelpa.
,,Það má ekki meiða“ 3 ára stelpa.
,,Að hlægja og syngja“ 3 ára strákur.
,,Að hafa bók“ 3 ára stelpa.
Mikilvægt starf leikskólanna
Dagur leikskólans er haldinn ár hvert til þess að lyta upp og vekja athygli á því frábæra starfi sem fer fram innan skólanna. Leikskólastigið er mikilvæg undirstaða hvers samfélags og þar fer fram metnaðarfullt starf þar sem börn ná grunni í ýmiskonar færni sem nýtist þeim svo vel á næstu stigum, bæði í skóla og í daglegu lífi.
Dagsetningin er engin tilviljun þar sem þann 6. febrúar 1950 stofnuðuð frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Mynd: Bjarkartún

Mynd: Glaumbær

Mynd: Bjarkartún

Mynd: Glaumbær

Frá heimsókn á skrifstofur Múlaþings

Heimsókn á skrifstofur sveitarfélagsins