Fara í efni

Fólk með fötlun fagnaði þorranum

13.02.2026 Fréttir

Í upphafi mánaðar blótaði fólk með fötlun í Múlaþingi þorrann í Hlymsdölum.

Um er að ræða árlegan viðburð og líkt og fyrri ár var mikið fjör.

María Sverrisdóttir segir ,,Það var gaman að dansa því hljómsveitin var góð og það var gott að borða þorramatinn." Og skyldi engan undra þar sem maturinn var frá Kjarnafæði Norðlenska og Coca Cola styrkti viðburðinn með drykkjum þriðja árið í röð. 

Gestir voru ánægðir með þorramatinn og og hin frábæra hljómsveit Hátt upp til hlíða hélt uppi stuðinu að borðhaldi loknu. Hljómsveitin þvertók fyrir að taka annað fyrir verkefnið en að fá að gæða sér á þorramat og á hún bestu þakkir fyrir.

Jónína Bára Benediktsdóttir tók sérstaklega fram ,,að það var gaman að dansa enda hljómsveitin góð".

 

 

 

Myndir: Frá þorrablótinu
Myndir: Frá þorrablótinu
Getum við bætt efni þessarar síðu?