Nú þegar haustið er að skella á okkur er ýmislegt um að vera hjá Bókasafni Múlaþings. Safnið tekur eins og áður þátt í barnamenningarhátíðinni Bras og býður að þessu sinni upp á þrjár ritlistarsmiðjur með rithöfundinum Ævari Þór Benediktssyni. Ævar Þór heimsækir allar starfsstöðvar bókasafnsins með smiðjur fyrir 9 til 12 ára. Hann verður á Seyðisfirði mánudaginn 21. september, á Djúpavogi þriðjudaginn 22. september og á Egilsstöðum miðvikudaginn 23. september. Allar smiðjurnar eru frá klukkan 16 til 18 og skráning fer fram með því að senda póst á netfangið bokasafn@mulathing.is.
Fyrir unglinga í 7. til 10. bekk bjóðum við upp á ritlistarsmiðju með rithöfundinum Arndísi Þórarinsdóttur þann 12. október. Sú smiðja fer fram á Egilsstöðum og er einnig frá klukkan 16 til 18. Skráning fer sömuleiðis fram á netfanginu bokasafn@mulathing.is.
Þessar smiðjur eru allar styrktar af Bókasafnasjóði.
Ungu fólki á aldrinum 16 til 25 ára býðst svo að koma á ritlistarsmiðju þann 5. október. Sú smiðja er haldin í samstarfi við Vegahúsið og fer fram þar og er styrkt af Uppbyggingarsjóði. Smiðjunni stýrir Margrét S. Höskuldsdóttir rithöfundur og handhafi Blóðdropans 2025. Opnað verður fyrir skráningar fljótlega.
Allar smiðjurnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Þá mun bókasafnið standa fyrir Sögustundum við varðeld í samstarfi við Náttúruskólann. Sögustundirnar fengu menningarstyrk Múlaþings og verða haldnar á vegum allra starfsstöðva bókasafnsins. Þær munu fara fram frá septemberlokum og fram í desember og verða nánar auglýstar síðar.
Við hvetjum öll til að fylgja Bókasafni Múlaþings á samfélagsmiðlum til að missa ekki af skemmtilegum viðburðum.
- Á Facebook: https://www.facebook.com/Bokasafn.Mulathings og á
- Instagram: https://www.instagram.com/bokasafn_heradsbua/
Að lokum vekjum við athygli á að laugardagsopnun er hafin á ný á Egilsstöðum og er bókasafnið opið þar alla laugardaga fram í maí, nema á stórhátíðum, frá klukkan 11 til 13.
Verið öll velkomin á ykkar bókasafn.

