Fara í efni

Framboð til heimastjórna

06.05.2022 Fréttir

Samhliða sveitarstjórnarkosningum 14. maí 2020 verða í Múlaþingi kosnir fulltrúar í fjórar heimastjórnir, þ.e. heimastjórn Borgarfjarðar, heimastjórn Djúpavogs, heimastjórn Fljótsdalshéraðs, heimastjórn Seyðisfjarðar. Kjörgengir til heimastjórnar eru allir íbúar á kjörskrá í Múlaþingi, hver skv. kjörskrá í sinni „heimasveit“, þ.e. í hverju hinna eldri sveitarfélaga sem nú mynda Múlaþing. Hægt er að kynna sér hlutverk heimastjórna hér á heimasíðu Múlaþings.

Einstaklingum sem vilja gefa kost á sér til heimastjórna býðst að kynna sig og sín áherslumál á heimasíðu Múlaþings. Stofnaðar hafa verið sérstakar síður á mulathing.is þar sem upplýsingarnar verða birtar í stafrófsröð um þá einstaklinga sem þess óska og gefa kost á sér til setu í heimastjórn.

Frambjóðendum er boðið að senda mynd af sér og stuttan kynningartexta á netfangið frettir@mulathing.is, að hámarki 200 orð. Í efninu þarf að koma fram nafn og heimilisfang frambjóðanda, sem eru þær upplýsingar sem kjósendur þurfa að skrá á kjörseðil í kosningunum sjálfum. Múlaþing ber ekki ábyrgð á því efni sem einstaklingar senda. Vanti nafn frambjóðanda eða heimilisfang verður efnið ekki birt.

Ljósmynd af Dyrfjöllum, Hafþór Snjólfur.
Ljósmynd af Dyrfjöllum, Hafþór Snjólfur.
Getum við bætt efni þessarar síðu?