Múlaþing, í samstarfi við HEF veitur og Rarik, heldur áfram með umfangsmiklar framkvæmdir við endurbyggingu og endurnýjun á götum og veitulögnum í Markarlandi á Djúpavogi.
Verkið er unnið í áföngum með það að markmiði að lágmarka rask og óþægindi fyrir íbúa og aðra vegfarendur.
Í morgun var hafist handa í Markarlandinu sem verður nú lokað með hjáleiðum fram til verkloka. Íbúar í Markarlandi hafa verið upplýstir um framvindu verksins, þrengingar og lokanir vegna þessa.
Leitast verður við að halda aðgengi sem greiðustu á hverjum tíma og upplýsa íbúa reglulega um framvindu verksins.
Áætlað er að framkvæmdum ljúki í lok júlí.
Meðfylgjandi teikning sýnir verksvæðið merkt inn með rauðum ramma.