Fara í efni

Framlengdur umsóknarfrestur í Vinnuskólann fyrir 13–17 ára

10.06.2026 Fréttir

Vinnuskólinn í Múlaþingi býður 13–17 ára ungmennum vinnu í sumar eða frá 10. júní til 13. ágúst. Vinnuskólinn er opinn öllum ungmennum fædd á árunum 2009–2013 og eiga lögheimili í sveitarfélaginu eða eiga foreldri/forsjáraðila sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu.

Í Vinnuskólanum fást nemendur við fjölbreytt verkefni. Flest snúa þau að garðyrkju og umhirðu í sveitarfélaginu en elstu árgangar kunna þó einnig að aðstoða við Sumarfrístund eða slátt. Í Vinnuskólanum er lögð áhersla á að kenna vönduð vinnubrögð og góða samvinnu í skemmtilegu vinnuumhverfi.

Starfsstöðvar vinnuskólans verða fjórar: á Borgarfirði, Djúpavogi, Egilsstöðum/Fellabæ og Seyðisfirði.

Unnið er fjóra daga vikunnar: mánudag til fimmtudags og frí á föstudögum. Vinnudögum kann þó að vera hliðrað fyrir elstu aldurshópana sem aðstoða við Sumarfrístund.

  • 13 ára (árgangur 2013) hafa kost á vinnu í 6 vikur, 3 klukkustundir. á dag, 4 daga vikunnar
  • 14 ára (árgangur 2012) hafa kost á vinnu í 6 vikur, 3 klukkustundir á dag, 4 daga vikunnar
  • 15 ára (árgangur 2011) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 6 klukkustundir á dag, 4 daga vikunnar
  • 16 ára (árgangur 2010) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 6 klukkustundir á dag, 4 daga vikunnar
  • 17 ára (árgangur 2009) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 6 klukkustundir á dag, 4 daga vikunnar

Laun verða lögð inn á bankareikning sem skal vera skráður á kennitölu nemanda og verða útborgunardagar í mánaðarlok. Forsjáraðilum nemenda sem óska eftir vinnu í Vinnuskólanum er bent á að sækja um fyrir þeirra hönd.

15–17 ára nemendur (árgangar 2009–2011) geta óskað eftir að aðstoða við Sumarfrístund en hún stendur nemendum 1.–4. bekkjar til boða. Í Sumarfrístund er lögð áhersla á útivist, hreyfingu og gleði. Meðal þess sem er gert í Sumarfrístund eru leikir, gönguferðir, hjólaferðir, sundferðir og fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 14. júní 2026.

Nánari upplýsingar um Vinnuskólann

Umsóknir í Vinnuskólann

Foreldrar/forsjáraðilar sækja um í Vinnuskóla Múlaþings í gegnum Mínar síður eða með því að smella á hlekkina hér að neðan.

Framlengdur umsóknarfrestur í Vinnuskólann fyrir 13–17 ára
Getum við bætt efni þessarar síðu?