Skipað hefur verið í samráðshóp um Cittaslow á Djúpavogi. Markmið hópsins er að efla vitund og starf í anda Cittaslow á svæðinu og mun hann starfa út núverandi kjörtímabil sveitarstjórnar.
Á fundi heimastjórnar 6. ágúst var tilkynnt að sjö lýstu yfir áhuga á að vinna í samráðshópnum og hafa þau verið skipuð í hlutverkið.
Fulltrúar í samráðshóp Cittaslow á Djúpavogi:
- Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir,
- Maciej Pietrunko,
- Ólafur Áki Ragnarsson,
- Þorbjörg Sandholt,
- Þóra Elísabet Kristjánsdóttir,
- Þórdís Sævarsdóttir og
- Þórir Stefánsson.
Ábendingar eða erindi til samráðshópsins sendist á Gretu Mjöll Samúelsdóttur greta.mjoll.samuelsdottir@mulathing.is.