Fara í efni

Fyrri úthlutun íþrótta- og tómstundastyrkja Múlaþings 2026

12.02.2026 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Múlaþing auglýsir til umsóknar styrki til íþrótta- og tómstundastarfs með umsóknarfrest til og með 15. mars 2026. Um er að ræða fyrri úthlutun ársins 2026.

Veittir eru styrkir til einstaklinga, hópa, félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana til íþrótta- og tómstundatengdra verkefna. Vinsamlega athugið að þessir styrkir eru ekki heilsueflingarstyrkir fyrir einstaklinga. Þau sem óska eftir stuðningi vegna heilsueflingar eru hvött til að sækja um slíka styrki til viðeigandi stéttarfélags.

Dæmi um verkefni sem fengu styrk í seinni úthlutun 2025 eru meðal annars klifurveggur í Herðubreið, Zumba-námskeið fyrir unglinga og uppbygging skátastarfs. Sótt er um styrk með rafrænum hætti á „Mínum síðum" Múlaþings. Afgreiðsla styrkumsókna mun liggja fyrir í lok mars 2026.

Styrkir eru einungis greiddir út á því ári sem þeir eru veittir og færast ekki á milli ára nema sérstaklega sé um það samið. Næst verður auglýst í september 2026, með umsóknarfrest til 15. október 2026. Umsækjendur er hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun styrkja á heimasíðu sveitarfélagsins.

Mynd: Herðubreið - Klifur
Mynd: Herðubreið - Klifur
Getum við bætt efni þessarar síðu?