Byggðaráð Múlaþings úthlutaði á dögunum 8,9 milljónum króna í styrki til 30 fjölbreyttra menningarverkefna í sveitarfélaginu. Um er að ræða fyrri úthlutun ársins en seinni úthlutun verður auglýst í ágúst.
Að þessu sinni bárust 44 umsóknir frá 41 aðila. Samtals námu styrkumsóknir 19,5 milljónum króna og heildarkostnaður verkefna var rúmlega 110 milljónir.
Fjöldi umsókna og fjölbreytileiki þeirra bera vitni um þá miklu grósku sem er í menningarstarfi í Múlaþingi. Meðal verkefna sem hlutu styrki að þessu sinni voru fjölbreyttar sýningar, smiðjur og námskeið fyrir börn og fullorðna, tónleikar, kvikmyndagerð, leiklistarverkefni, útvarpsþættir, menningarhátíðir og fleira.
Umsækjendum öllum er hér með þakkað fyrir umsóknirnar og styrkhöfum óskað velgengni með þeirra verkefni, sem munu án efa auðga samfélagið í Múlaþingi á komandi ári.
Næsta úthlutun menningarstyrkja Múlaþings verður sem fyrr segir auglýst í ágúst.
Eftirtalin hlutu styrki að þessu sinni:
Andri Björgvinsson: Sumardagskrá í Glettu. Úthlutun: 300.000 kr.
Anton Máni Svansson: Kjarval, leikin kvikmynd í fullri lengd. Úthlutun: 400.000 kr.
Apolline Alice Penelopa Barra: Fiskisúpa-Ljósmyndasósa, röð ljósmyndaviðburða. Úthlutun: 350.000 kr.
Bjartur Elí Ragnarsson: Allt fyrir utan Hafnarhúsið (vinnutitill), myndlistarsýning. Úthlutun: 280.000 kr.
Bláa kirkjan: Sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar 2026. Úthlutun: 350.000 kr.
Bókasafn Múlaþings: Kveikja - sögur og sköpun, skapandi viðburðaröð fyrir börn á öllum bókasöfnum Múlaþings. Úthlutun: 400.000 kr.
Daria Andronachi: Connected by food and Connected by food-Christmas mood, tveir samfélagsviðburðir sem fagna menningarlegum fjölbreytileika mannlífs á Austurlandi í gegnum mat. Úthlutun: 350.000 kr.
Erica Sieling: „Ég á heima hér". Listsýning innblásin af landslagi, dýralífi og daglegu lífi á Borgarfirði eystri. Úthlutun: 120.000 kr.
Hlín Pétursdóttir Behrens: Tónlistarstundir, tónleikaröð í Egilsstaðakirkju og Vallaneskirkju. Úthlutun: 350.000 kr.
Hollvinasamtök um Gömlu kirkjuna á Djúpavogi: Maður er manns gaman, samfélags- og menningarviðburðir. Úthlutun: 150.000 kr.
Lasse Høgenhof Christensen: Frásagnasafnið – Í LOFTINU, útvarpsþættir. Úthlutun: 350.000 kr.
Leikfélag Fljótsdalshéraðs: Afmælisvetur Leikfélags Fljótsdalshéraðs. Úthlutun: 400.000 kr.
Menningarfélag Borgarfjarðar: Allt þetta og himininn líka - myndlistarsýning Emilíu Lorange. Úthlutun: 400.000 kr.
Minjasafn Austurlands: Undirbúningur og frumhönnun grunnsýningar - samráð við samfélagið. Úthlutun: 320.000 kr.
Monika Fryčová: KIOSK 108: Sumardagskrá (2026). Úthlutun: 250.000 kr.
Móðir jörð: Skógargleðin í Vallanesi 2026, matar- og menningarviðburður. Úthlutun: 300.000 kr.
Ra Laura Elisabeth Tack: Listamannadvöl og viðburðaröð fyrir hinsegin fólk á Austurlandi. Úthlutun: 350.000 kr.
Randalín handverkshús: Afrakstur ævinnar - Kennari, frumkvöðull, listakona, sýning um lífsverk listhandverkskonunnar og kennarans Guðrúnar Sigurðardóttir frá Húsey. Úthlutun: 320.000 kr.
Sesselja Hlín Jónasardóttir: 100 ár frá fæðingu Garðars Eymundssonar, minningarsýning. Úthlutun: 240.000 kr.
Skaftfell: Prentnámskeið 2026 í Prentverki Seyðisfjarðar. Úthlutun: 400.000 kr.
Sláturhúsið – menningarmiðstöð: Vor / Wiosna – Sviðslistir, árleg lista- og menningarhátíð þar sem áhersla er lögð á samspil og samtal pólskra listamanna við íslenskt samfélag. Úthlutun: 420.000 kr.
Sóley Þrastardóttir: Duo, tónleikar í Egilsstaðakirkju. Úthlutun: 170.000 kr.
Stólpi: List án landamæra, listaverkefni þar sem fólk með fötlun fær rými til að tjá sína listsköpun með þeim aðferðum sem hentar hverjum og einum listamanni. Úthlutun: 200.000 kr.
Ströndin atelier: Ljósmyndadagar á Seyðisfirði 2026 – Staðarviska. Úthlutun: 420.000 kr.
Teresa Maria Rivarola: WHAT HOME MEANS TO US, collective lab, sögur innflytjendakvenna. Úthlutun: 400.000 kr.
The grumpy whale: Þara listasmiðjur á Djúpavogi. Úthlutun: 120.000 kr.
Tækniminjasafn Austurlands: Þróun stuttra leikþátta um seyðfirskar afturgöngur. Úthlutun: 350.000 kr.
Wioleta Anna Ujazdowska: Melancholia - Einkasýning Wiolu Ujazdowska. Úthlutun: 420.000 kr.
Þórunn Ólafsdóttir: Orðið á götunni, ljóðaviðburður. Úthlutun: 100.000 kr.