Fara í efni

Geðræktarmiðstöð Austurlands opnar á Egilsstöðum og Reyðarfirði

10.10.2025 Fréttir

Geðræktarmiðstöð Austurlands verður formlega opnuð á Egilsstöðum í dag, 10. október, frá klukkan 15 til 16, og á Reyðarfirði þann 17. október frá klukkan 12 til 14.

Opnun miðstöðvarinnar markar tímamót í þjónustu við fólk í landshlutanum sem glímir við andleg veikindi, einmanaleika eða félagslega einangrun. Opnunin er liður í því að styrkja geðrækt og vellíðan íbúa á svæðinu.

Miðstöðin starfar undir einkunnarorðunum vinátta, vöxtur, vellíðan og mun verða öruggt, opið rými fyrir einstaklinga sem glíma eða hafa glímt við andleg veikindi, einmanaleika eða félagslega einangrun. Hún er opin öllum 18 ára og eldri, án tilvísunar eða sjúkdómsgreiningar.

Markmið miðstöðvarinnar er að efla tengsl einstaklinga við samfélagið og styrkja upplifun þeirra af því að vera hluti af heild. Í boði verður fjölbreytt dagskrá sem mótuð verður í samstarfi við notendur.

Verkefnið er styrkt af Alcoa Foundation og er samstarfsverkefni Austurbrúar, Starfsendurhæfingar Austurlands (StarfA), Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA), Múlaþings og Fjarðabyggðar.

Staðsetning og opnunartímar verða sem hér segir:

  • Egilsstaðir: Í húsnæði StarfA eftir hádegi, opið á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13–16.

Einnig verður listasmiðja í Fjárhúsunum í Fellabæ á mánudögum kl. 13–16.

  • Reyðarfjörður: Í félagsheimili eldri borgara að Melgerði 13. (Á eftir að festa daga.)

Jafningjastuðningur í fyrirrúmi

Í geðræktarmiðstöðvunum munu starfa notendafulltrúar sem hafa fasta viðveru og veita notendum stuðning. Hlutverk þeirra er að veita hjálp út frá eigin reynslu af bata, hlusta, sýna samkennd og miðla von. Þeir verða jafnframt tengiliðir milli notenda og stjórnenda verkefnisins, halda utan um hópastarf og aðstoða við listasmiðjur, námskeið og fræðslu.

Fram að áramótum verða tveir notendafulltrúar á Egilsstöðum og tveir á Reyðarfirði.

Saman í átt að bata

Linda E. Pehrsson, forstöðumaður StarfA, segir opnun miðstöðvarinnar marka tímamót í þjónustu við fólk sem glímir við andleg veikindi:

„Það er mín von að þetta skapi tækifæri til að vinna með von sem færir nýjan kraft og gefur viljanum vængi. Í geðræktarmiðstöðinni mun fara fram valdeflandi starfsemi, notendafulltrúar og þátttakendur munu vinna saman að því að skapa umhverfi til að gleyma sér í skapandi iðju, efla heilsu, þátttöku og vellíðan í daglegu lífi, tilheyra hóp og vera í tengslum við annað fólk á jafningjagrundvelli.“

Sigurlín Hrund Kjartansdóttir, yfirsálfræðingur hjá HSA, segir miðstöðina fylla mikilvægt skarð í þjónustu á svæðinu:

„Ég tel geðræktarmiðstöðina geta skaffað það sem okkur vantar upp á í heilsugæsluþjónustunni. Viðtöl ein og sér eru oft ekki nóg – fólk þarf að hafa stað þar sem það getur verið í félagslegri virkni án fordóma.“

Anna Alexandersdóttir bendir á að miðstöðin komi ekki í staðinn fyrir geðræktarmiðstöðina Ásheima heldur sé þetta frábær viðbót við þau úrræði sem nú þegar séu til staðar í fjóðungnum eða eins og hún orðaði það sjálf: ,,Varðandi geðræktarmiðstöðina og til þess að valda ekki misskilningi er mikilvægt að árétta að við erum nú þegar með mann- og geðræktarmiðstöðina Ásheima sem er staðsett í Hlymsdölum og hún verður þar áfram.

Áherslan við opnunina hér er hinsvegar áhersla á markhóp sem hefur áhuga á grunnendurhæfingu, áhersla á að efla heilsu, þátttöku og líðan. Hér eru tækifæri til að vinna með hver er ég?, hvað vil ég?, og hvert stefni ég?. Staðsetningin styður við möguleikann á að flæða yfir í starfsendurhæfinguna ef þátttakandi stefnir á nám eða atvinnuþátttöku í framtíðinni.

Það hefur vantað úrræði fyrir þennan hóp hér fyrir austan og því verður spennandi að sjá hvernig verkefninu framvindur.

Í undirbúningi höfum við horft til endurhæfingarhússins Hver á Akranesi sem ætlað er þeim sem tapað hafa hlutverkum í lífinu vegna veikinda, sjúkdóma, slysa, áfalla eða annarra þátta sem koma í veg fyrir þátttöku í samfélaginu.“

Austurbrú leiddi undirbúning

Austurbrú hefur stýrt skipulagsvinnunni við að koma Geðræktarmiðstöð Austurlands á laggirnar og sótti, ásamt samstarfsaðilum, um styrk frá Alcoa Foundation til að gera verkefnið að veruleika.

Erna Rakel Baldvinsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, segir það mikilsvert að þessi þjónusta sé nú að verða að veruleika:

„Þetta verða vonandi tímamót fyrir geðheilbrigðismál á Austurlandi. Við hjá Austurbrú erum þakklát fyrir traustið sem Alcoa Fjarðaál og Alcoa Foundation hafa sýnt okkur með þessum styrk, og hlökkum til að sjá hvernig miðstöðin mun vaxa og dafna með þátttöku fólksins sjálfs.“

Mynd: Gunnar Gunnarsson
Mynd: Gunnar Gunnarsson
Getum við bætt efni þessarar síðu?