Fara í efni

Geymslusvæði á Háaurum

31.05.2023 Fréttir Djúpivogur

Tekið hefur verið í notkun geymslusvæði á Háaurum. Um er að ræða sex bil, 8m x 22m, á óvöktuðu malarsvæði.
Greitt er fyrir aðstöðu á geymslusvæðinu samkvæmt gjaldskrá Hafna Múlaþings. Athugið að aðgengi að svæðinu miðast við opnunartíma móttökusvæðisins sem er innan sömu girðingar. Þeim sem hafa áhuga á að festa sér svæði á leigu er bent á að hafa samband við Nökkva Fannar Sigrúnarson, verkstjóra í þjónustumiðstöðinni á Djúpavogi.

Geymslusvæði á Háaurum
Getum við bætt efni þessarar síðu?