Fara í efni

Gjöf Kvenfélagsins Vöku til leikskólabarna á Djúpavogi

09.02.2023 Djúpivogur

Kvenfélagið Vaka gaf leikskólabörnum á Djúpavogi skemmtilegt leikefni sem hægt er að nota á fjölbreyttan hátt. Í pakkanum voru mjúkir svampkubbar sem hægt er að leika sér með og byggja úr enda eru þeir í allskonar lögun og stærð. Þá fékk leikskólinn tvö sett af MODU kubbum en þessir kubbar eru með endalausa möguleika og tilvaldir fyrir opinn leik og skapandi hugsun. Krakkarnir geta leyft ímyndunaraflinu að njóta sín þar sem hægt er að setja saman allskonar útfærslur með pinnum og hjólum sem fylgja með. Að endingu er það svo segulkubbarnir þar sem hægt er að setja saman á fjölbreyttan hátt. Eitt settið er kúlubraut en hitt settið eru segulkubbar þar sem hægt er að byggja allskonar stóra og smáa hluti.

Kvenfélagskonum er þakkað kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem mun nýtast leikskólanum vel í opnu og skapandi starfi með börnunum.

Gjöf Kvenfélagsins Vöku til leikskólabarna á Djúpavogi
Getum við bætt efni þessarar síðu?