Fara í efni

Góð þátttaka á íbúafundi og enn hægt að hafa áhrif

22.04.2026 Fréttir Egilsstaðir

Mánudaginn 20. apríl var haldinn opinn íbúafundur í Menntaskólanum á Egilsstöðum um framtíðaruppbyggingu íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum.

Fundurinn var haldinn af starfshópi um framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja á Egilsstöðum og er þriðji samráðsliðurinn af fjórum.

Fyrst voru haldnar tvær lokaðar vinnustofur og nú síðast opinn íbúafundur. Að lokum verður haldin vinnustofa með grunnskólanemendum á svæðinu. Með þessu móti er verið að kalla eftir innleggi, athugasemdum og innsýn íbúa allt frá fyrsta bekk grunnskóla og upp úr. Markmið opna íbúafundarins var einmitt að fá sjónarhorn íbúa inn í vinnuna.

Á viðburðina hefur verið góð mæting, virk þátttaka og líflegar umræður skapast. Snið fundanna er þannig að unnið er á borðum þar sem verkefnum er deilt út og þátttakendur vinna þau ýmist saman eða í sitthvoru lagi. Farið er í gegnum svokallaða SVÓT greiningu og spurningarlistum svarað.

Starfshópurinn þakkar góða mætingu og fyrir framlag þeirra sem sáu sér fært að taka þátt.

Íbúar hvattir til að fylla út könnun

Þá er enn hægt að koma athugasemdum á framfæri með því að fylla út meðfylgjandi könnun og eru íbúar hvattir til að koma skoðunum sínum á framfæri þar í gegn hafi þeir ekki nú þegar gert það með því að mæta á fund. Könnunin er opin til klukkan 12:00 fimmtudaginn 30. maí.

Verkefnið er spennandi og mikilvægt að ná fram röddum íbúa. Áætlað er að starfshópurinn skili svo af sér frumhönnun og frumkostnaðaráætlun í lok árs.

Góð þátttaka á íbúafundi og enn hægt að hafa áhrif
Getum við bætt efni þessarar síðu?