Gengið hefur verið frá ráðningu í starf fulltrúa sveitarstjóra á Djúpavogi. Greta Mjöll Samúelsdóttir var ráðinn í starfið og mun hún hefja störf þann 1. júní næstkomandi.
Greta Mjöll er með BA gráðu í fjölmiðlun frá Northeastern háskólanum í Bandaríkjunum. Hún lauk MA gráðu í stafrænni fjölmiðlun frá sama skóla árið 2013. Að námi loknu starfaði Greta í framleiðsluteymi og tæknibrelludeild Lazytown og því næst í hugmyndavinnu og uppbyggingu við hvalasýninguna hjá Whales of Iceland. Því næst vatt hún kvæði sínu í kross og flutti austur á Djúpavog þar sem hún hefur þjálfað fólk á öllum aldri í íþróttum, sinnt starfi atvinnu- og menningarfulltrúa sveitarfélagsins og stýrt starfsemi Tryggvabúðar. Samhliða þessum störfum hefur hún verið í eigin rekstri, séð um útgáfu Bóndavörðunnar og sinnt ýmiskonar stjórnarsetu sem snertir nærsamfélagið á Djúpavogi.
Greta mætir vel þeim kröfum sem gerðar voru í auglýsingu um menntun, reynslu og þekkingu.
,,Ég er ægilega spennt að fá að leggja áfram mitt af mörkum í samfélaginu okkar og fást við ný og krefjandi verkefni." Sagði Greta við ráðninguna.
Sveitarfélagið býður hana velkomna til starfa.