Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Austurland sem tekur gildi mánudaginn 6. apríl klukkan 19:00 og gildir til klukkan 02:00 aðfaranótt þriðjudags 7. apríl.
Samkvæmt viðvöruninni er búist við austan 13–18 m/s og mikilli snjókomu eða slyddu með slæmu skyggni. Gera má ráð fyrir talsverðum samgöngutruflunum, einkum á fjallvegum.
Íbúar eru hvattir til að huga að niðurföllum og tryggja að vatn geti runnið greiðlega frá. Ferðalangar eru jafnframt hvattir til að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum áður en lagt er af stað, ekki síst á fjallvegum í umdæminu.
Nánari upplýsingar má nálgast á vef Veðurstofu Íslands og hjá Vegagerðinni.