Fara í efni

Erindi og könnun um Úthéraðsverkefnið

21.05.2021 Fréttir

Miðvikudaginn 12. maí var haldinn kynningarfundur um verkefnið Úthérað – náttúruvernd og efling byggða.

Fundurinn var fjarfundur og tekinn upp og er aðgengilegur á Facebooksíðu Múlaþings. Þau sem ekki gátu sótt fundinn í síðustu viku gefst því enn þá kostur á að hlýða á erindin. Jafnframt eru þau sem áhuga hafa, hvött til þess að svara stuttri könnun, eftir að hafa hlýtt á fyrirlestrana, en spurningakönnunina má finna hér. Frestur til að svara könnuninni er til 10. júní.

Verkefnið er hluti af byggðaáætlun en er jafnframt hluti af verkefni sem Fljótsdalshérað hefur unnið að á undanförnum árum um möguleika náttúru- og menningartengdrar ferðaþjónustu á Úthéraði.

Vakin er athygli á að nálgast má tvær áfangaskýrslur, sem unnar hafa verið um verkefnið, á heimasíðu Náttúrustofunnar, þ.e. um lýsingu svæðisins og hagrænar sviðsmyndir.

Dagskrá fundarins þann 12. maí var svona:

  • Farið yfir tilurð, tilgang og stöðu verkefnisins – Múlaþing, Stefán Bogi Sveinsson
  • Farið yfir niðurstöður greinargerða 1 og 2 um Úthéraðsverkefni unnar af Náttúrustofunni – Guðrún Óskarsdóttir
  • Hvað er friðlýsing? – Umhverfisstofnun, Ingibjörg Marta Bjarnadóttir
  • Náttúruvernd og byggðaþróun – Rannsóknasetur HÍ á Hornafirði, Þorvarður Árnason
  • Leitað eftir skoðun þátttakenda sem mikilvæg innlegg fyrir lokaskýrslu um C9 verkefnið
  • Næstu skref í verkefninu – Austurbrú, Jóna Árný Þórðardóttir

 

Fyrirhuguð er að halda vinnustofu í Hjaltalundi um verkefnið með þeim sem áhuga hafa þegar aðstæður leyfa.

Erindi og könnun um Úthéraðsverkefnið
Getum við bætt efni þessarar síðu?