Fara í efni

Hæsti styrkur úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða rennur til verkefnisins ,,Baugur Bjólfs" á Seyðisfirði

17.04.2023 Fréttir Egilsstaðir Seyðisfjörður

28 verkefni hljóta styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2023 fyrir alls 550 milljónir en hæsti styrkurinn að þessu sinni eru 158 milljónir kr. í verkefnið „Baugur Bjólfs“ á Seyðisfirði. Næsthæsti styrkurinn eða 81,1 milljón kr. rennur til öryggis og náttúruverndar við Stuðlagil. Baugur Bjólfs er hringlaga útsýnispallur sem situr á Bæjarbrún. Þar verður einstakt útsýni yfir Seyðisfjörð — frá mynni fjarðarins, yfir bæinn, fjallahringinn og suðvestur inn í dalinn. Að ofanverðu gnæfa tindar Bjólfs yfir.
Verkefnin sem hljóta styrk í ár snúa að fjölbreyttri uppbyggingu um land allt. Það er sérstaklega ánægjulegt að 20 af 28 verkefnum sem hljóta styrk eru skilgreind á áfangastaðaáætlun innan síns svæðis. Alls bárust að þessu sinni 101 umsókn um styrki, samtals að fjárhæð 2.037.984.107 kr., til verkefna að heildarfjárhæð 6.401.045.030 kr. Stjórn Framkvæmdasjóðsins lagði til að alls 28 verkefni yrðu styrkt að þessu sinni, samtals að fjárhæð 550.000.000 kr. 

Verkefnin sem nú hljóta styrk eru að vanda afar fjölbreytt en hverfast öll um öryggi ferðamanna, bætt aðgengi, bætta innviði, náttúruvernd og sjálfbærni. Styrkirnir fara til verkefna hringinn í kringum landið, stórra sem smárra, sem öll skipta máli. Frá árinu 2012 til 2022 hafa alls 849 verkefni hlotið styrk úr Framkvæmdasjóðnum og bætast því nú 28 verkefni við í þann hóp. Mikill árangur hefur náðst í starfi sjóðsins í að bæta innviði um land allt og auka getu svæðanna til að taka á móti ferðamönnum.

Múlaþing óskar þeim sem hljóta styrk að þessu sinni innilega til hamingju.

Listi yfir verkefnin sem hljóta styrk að þessu sinni má finna hér að neðan:

• 157,6 m. kr. Baugur Bjólfs útsýnispallur á Seyðisfirði
• 81,1 m. kr. Öryggi og náttúrvernd við Stuðlagil
• 72 m. kr. Útsýnispallur í hlíðum Reynisfjalls
• 27 m. kr. Hrísey - greið leið um fornar slóðir
• 24 m. kr. Uppbygging á Englandi í Borgarbyggð
• 21 m. kr. Yltjörn – Bætt aðgengi
• 20 m. kr. Seltún – áframhaldandi uppbygging
• 18,7 m. kr. Múlagljúfur - 2. áfangi. Framkvæmd og frekari hönnun áfangastaðar
• 15,5 m. kr. Innviðauppbygging, náttúruvernd og öryggismál í selafjörunni við Ytri-Tungu á Snæfellsnesi
• 13 m. kr. Staðarbjargavík - Hönnun útsýnispalla og stiga
• 12,3 m. kr. Umbætur í Ölfusdölum - Reykjadalur og nærliggjandi svæði
• 11,4 m. kr. Spákonufellshöfði - Fasi 2
• 10,5 m. kr. Hrunalaug uppbygging
• 10,2 m. kr Stikun og merkingar á gönguleið milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar
• 8,3 m. kr. Uppbygging Hóla í Hjaltadal sem áfangastaðar fyrir ferðamenn.
• 6,8 m. kr. Grímsey – bætt upplifun og öryggi
• 6 m. kr. Gengið úr leirnum
• 5,9 m. kr. Glymur í botni Hvalfjarðar
• 5,8 m. kr. Hólmsá-Rauðibotn-Hólmsárlón, skipulag, hönnun og merkingar
• 4,7 m. kr. Valagil - göngustígur og áfangastaður
• 4,5 m. kr. Hönnun á aðgengi og sturtuaðstöðu á Langasandi.
• 3,3 m. kr. Stikun og merkingar gönguleiðar yfir Fimmvörðuháls
• 3 m. kr. Göngustígar og aðgengi Listasafni Samúels í Selárdal
• 2,8 m. kr. Gönguleið að Selvíkurvita og rústum Evangers - 1. Hluti
• 2,5 m. kr. Bætt aðgengi að Sviðsetningu Haugsnesbardaga
• 600 þ. kr. Merking gönguleiðarinnar um Snæfjallahringinn
• 500 þ. kr. Áningarhólf við Skjöld í Stykkishólmi-Helgafellssveit
• 460 þ. kr. Gönguleið: Fellsströnd - Skarðsströnd

Hæsti styrkur úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða rennur til verkefnisins ,,Baugur Bjólfs
Getum við bætt efni þessarar síðu?