Fara í efni

Hætta á skriðum og grjóthruni

02.09.2025 Fréttir

Spáð er norðan og norðaustanáttum og ringinu eða súld norðan og austanlands og talsverðri úrkomu á Austfjörðum í dag og fram á morgundag.

samhliða því fylgir auknar líkur á skriðuföllum, svo sem grjóthrun, aurskriður eða aurflóð í lækjarfarvegum. Þar sem vegir liggja undir bröttum hlíðum getur verið hætta á skriðum og grjóthruni á vegi. Bent er á að fólk sýni aðgát þegar ferðast er undir bröttum hlíðum, horfi í kringum sig og forðist að dvelja lengi innan og neðan farvega. Auk þess þarf að hafa í huga að skriður geta fallið eftir að mesta ákefð rigningar er afstaðin.

Skriðuvakt Veðurstofunnar fylgist náið með mælitækjum á Seyðisfirði og Eskifirði.

Tilkynningar skriðufalla

Skriðuvakt Veðurstofunnar mun fylgjast með aðstæðum en til þess að geta lagt betur mat á aðstæður er mikilvægt fyrir okkur á vaktinni að fá tilkynningar um skriður og grjóthrun. Hægt er að hafa samband í síma 522-6000 á opnunartíma skiptiborðsins eða senda tölvupóst með upplýsingum á netfangið skriduvakt@vedur.is.

Gott er að láta fylgja mynd með af skriðunni eða grjóthruninu og nákvæma staðsetningu auk tímasetningar, hvenær skriðan féll eða hvenær fólk varð vart við hana. Einnig er hægt að tilkynna grjóthrun og skriður með þessu formi hér.

Nánari upplýsingar á vef Veðurstofunnar. 

Mynd: Lögreglan á Austurlandi
Mynd: Lögreglan á Austurlandi
Getum við bætt efni þessarar síðu?