Fara í efni

Hafnargata á Seyðisfirði lokuð á mánudagskvöld 27. apríl

27.04.2026 Tilkynningar Seyðisfjörður

Vegna tengivinnu við gamla ríkið þarf að loka Hafnargötu frá klukkan 22:00 á mánudagskvöld 27. apríl og fram eftir kvöldi. Ekki er möguleiki á hjáleið og verða þeir sem eiga erindi utan við Hafnargötu 11 að gera ráðstafanir vegna þess.

Þá þarf að loka fyrir hitaveitu frá Hafnargötu 10 og út eftir í skamma stund á framkvæmdartímanum.

Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu HEF veitna í síma 4 700 780 eða á netfangi hef@hef.is.

Frétt á heimasíðu HEF veitna.

Hafnargata á Seyðisfirði lokuð á mánudagskvöld 27. apríl
Getum við bætt efni þessarar síðu?