Hammondhátíð Djúpavogs verður sett á sumardaginn fyrsta, venju samkvæmt. Í ár verður sérstaklega mikið um dýrðir enda fagnar hátíðin 20 ára afmæli.
Hátíðin hefur vaxið jafnt og þétt þau 20 ár sem hún hefur verið við lýði og hefur nú fest sig í sessi meðal elstu og stærstu tónlistarhátíðanna sem fara fram á landsbyggðinni. Sérstaða hátíðarinn er mikil en hún er, eftir því sem næst verður komist, eina hátíðin í heiminum sem er helguð hammondorgelinu.
Hátíðin stendur yfir í fjóra daga og í tilefni afmælisins er dagskráin með glæsilegasta móti að sögn Ólafs Björnssonar, eins skipuleggjenda: ,,Líklega hefur fjölbreytnin aldrei verið jafn mikil og á þessari afmælishátíð en fram koma Skálmöld, Elín Hall, Killer Queen, Kælan Mikla, Sniglabandið og bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór, sem loka hátíðinni með tónleikum á sunnudeginum í Djúpavogskirkju. Allir gestir ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi”
Í kringum hátíðina sjálfa hefur myndast hefð fyrir viðamikilli utandagskrá þar sem fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og einstaklingar á Djúpavogi taka höndum saman og bjóða upp á fjölbreytta viðburði auk þess sem veitingastaðir bæjarins opna dyr sínar og bjóða ýmis tilboð. Meðal viðburða sem eru utan við dagskrá Hammondhátíðar að þessu sinni eru brennómót, skrúðganga, pílumót, skotmót, fjölskyldubíó, hæglætismarkaður, pop-up bakarí og markaðir, viðburðurinn edrúlífið í Djúpavogskirkju og margt fleira.
Þá er vert að minnast sérstaklega á að nemendur 10. bekkjar í Djúpavogsskóla standa fyrir áheitagöngu yfir Öxi til að safna fyrir skólaferðalagi. Með göngunni vilja nemendurnir vekja athygli á bágu ástandi vegarins og undirstrika mikilvægi almenningssamgangna innan Múlaþings og er öllum velkomið að slást í för með þeim.
Nánari upplýsingar um hátíðina og utandagskrána má finna á vef hátíðarinnar.