Fara í efni

Hammondhátíð 2023

13.04.2023 Fréttir Djúpivogur

Dagskráin í ár er einkar glæsileg. Á upphafskvöldinu verður boðið upp á Classic Rock með Magna og Stebba Jak, á föstudagskvöldinu stíga á stokk Svavar Organ Band og 200.000 naglbítar, laugardagskvöldið er í höndum Hjálma og á lokatónleikunum, sem fram fara í Djúpavogskirkju á sunnudeginum, mætir Ragga Gísla ásamt þeim Guðna Finns, Magga Magg og Tómasi Jónssyni, Hammondséníi.

Markmið Hammondhátíðar er að heiðra þetta magnaða hljóðfæri, Hammondorgelið, en eftir því sem hátíðarhaldarar komast næst er þetta eina hátíðin í heiminum sem tileinkuð er þessu hljóðfæri.            

Hátíðin er alltaf sett á sumardaginn fyrsta, var fyrst haldin árið 2006 og hefur jafnt og þétt vaxið fiskur um hrygg síðan og er nú orðin ein af elstu og stærstu tónlistarhátíðum sem fram fara á landsbyggðinni. Listinn yfir það tónlistarfólk og hljómsveitir sem komið hafa fram á hátíðinni í gegnum tíðina er orðin langur og glæsilegur og hafa hljómsveitir og listafólk á borð við Nýdönsk, Mugison, LayLow, Sólstafi, Stuðmenn, Ensími, Agent Fresco, Valdimar, Todmobile, Langa Sela og skuggana, Mono Town, Mammút, Ragga Bjarna, Diktu, Kiriyama Family, Emmsjé Gauta, Moses Hightower, Amabadama, Jónas Sig., Bubba & Dimmu og Sölku Sól heiðrað hátíðina með nærveru sinni. Allt í allt hafa um 260 tónlistarmenn stigið á stokk á Hammondhátíð.

Hammondhátíð er orðin langstærsti menningarviðburður Djúpavogs og þessa helgi er bærinn fullur af fólki frá fimmtudegi til sunnudags, en auk tónleikana taka íbúar höndum saman og bjóða upp á fjöldann allan af utandagskrárviðburðum þar sem öll geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Upplýsingar um utandagskrá

Heimasíða Hammondhátíðar

Hammondhátíð 2023
Getum við bætt efni þessarar síðu?