Háskólalestin heldur austur á bóginn í lok apríl og verður með vísindaveislu á Egilsstöðum dagana 28. til 30. apríl. Austfirðingum er boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
28. apríl: Kennarasmiðjur
Heimsóknin hefst þriðjudaginn 28. apríl þegar boðið verður upp á kennarasmiðjur fyrir kennara á svæðinu. Þar er lögð áhersla á faglega þróun og að veita kennurum innblástur sem nýtist í skólastarfi.
29. apríl: Nemendadagur
Miðvikudaginn 29. apríl taka nemendur í 7.–10. bekk Egilsstaðaskóla þátt í spennandi námskeiðum. Nemendur sitja alls þrjú námskeið yfir daginn og kynnast fjölbreyttum sviðum vísinda og fræða á líflegan hátt. Í boði eru meðal annars námskeið tengd stjörnufræði, eðlisfræði, skurðlækningum, jarðfræði, íþrótta- og heilsufræði, blaða- og fréttamennsku, japönskum fræðum, tæknisköpun og skapandi sjálfbærni.
30. apríl: Opið vísindahús fyrir alla fjölskylduna
Fimmtudaginn 30. apríl klukkan 16:00 – 18:00 verður Opið vísindahús í Egilsstaðaskóla þar sem fólk á öllum aldri er hjartanlega velkomið í vísindagleði fyrir alla fjölskylduna. Þetta er kjörið tækifæri fyrir forvitna krakka, foreldra, ömmur, afa og alla sem hafa áhuga á að upplifa vísindin á lifandi hátt.
Gestir geta meðal annars kynnst stjörnufræði með Sævari Helga, tekið þátt í að skjóta vatnseldflaugum hátt upp í loft og prófað styrk sinn og hreyfigetu á stöðvum í íþrótta- og heilsufræði. Gestum gefst einnig tækifæri á að skyggnast inn í heim skurðlækninga með því að prófa að sauma í gervihúð, kynnast fréttamennsku með því að taka eigin viðtöl og fá innsýn í japanska menningu og origami.
Þá verður hægt að taka þátt í tækniverkefnum tengdum forritun, vélmennum og Micro:bit og skapa með FabLab Austurlandi. Þátttakendur fá jafnframt innsýn í jarðfræði og kortagerð með sérfræðingum frá Rannsóknasetri HÍ á Breiðdalsvík og kynnast skapandi sjálfbærni og lífprenti með fulltrúum Háskóla Íslands á Hallormsstað.
Aðgangur að Opna vísindahúsinu er ókeypis og engin skráning nauðsynleg.
Í áhöfn Háskólalestarinnar er vísindafólk, kennarar og sérfræðingar úr fjölbreyttum greinum Háskóla Íslands. Markmið verkefnisins er að gera vísindi sýnileg og aðgengileg og styrkja tengsl háskólans við landsbyggðina.
Háskólalestin hefur ferðast um landið frá árinu 2011 og hlotið Vísindamiðlunarverðlaun Rannís.
Nánari upplýsingar má finna á haskolalestin.hi.is og á Facebook-síðu Háskólalestarinnar.