Fara í efni

Haustroði, hin árlega markaðs- og uppskeruhátíð Seyðfirðinga

27.09.2022 Fréttir Seyðisfjörður

Haustroði, hin árlega markaðs- og uppskeruhátíð Seyðfirðinga verður haldinn hátíðlegur um helgina.
Gleðin hefst með tónleikum og uppistandi hæfileikahjónanna Snorra Helga og Sögu Garðars í Herðubreið á föstudagskvöldið.

Stóri dagurinn er þó á laugardaginn þar sem verður hin sígilda matar- og markaðsstemning í félagsheimilinu Herðubreið. Þar mun kenna ýmissa grasa en í boði verður kompudót og fatnaður frá smekklegum íbúum og matur og handverk frá hæfileikafólki. Sultukeppnin er á sínum stað og væntum við þess að samkeppnin verði jafnt gómsæt og harðvíg. Við biðjum fólk að mæta með sultukrukku í Herðubreið milli klukkan 11 - 12 ásamt lokuðu umslagi sem merkt er nafni sultunnar og nafni sultugerðarmannsins. Úrslit verða kynnt í Herðubreið klukkan 15:30.

Ungir Austfirðingar hafa eflaust beðið lengi eftir dans- og söngvamyndinni Abbababb sem frumsýnd var um síðustu helgi. Hún verður sýnd í fyrsta sinn á Austurlandi í Herðubíó klukkan 15:00. Myndlistin fær sitt pláss en Ra Tack opnar myndlistasýningu í Herðubreið og sýning Rikke Luther í sýningarsal Skaftfells og Bernd Koberling í Skaftfell Bistro verða opnar almenningi. Deginum verður síðan slitið með barsvari á Hótel Öldu.

Nánari dagskrá og frekari upplýsingar má sjá hér.

Haustroði, hin árlega markaðs- og uppskeruhátíð Seyðfirðinga
Getum við bætt efni þessarar síðu?