Fara í efni

Heimasíða fyrir Múlaþing

20.10.2020 Fréttir

Tekin hefur verið í notkun heimasíða fyrir sveitarfélagið Múlaþing sem hefur lénið mulathing.is. Þær heimasíður sem áður tilheyrðu Borgarfjarðarhreppi, Djúpavogshreppi, Fljótsdalshéraði og Seyðisfjarðarkaupstað þjóna ekki lengur því hlutverki að vera opinberar heimasíður sveitarfélagsins. Íbúum sveitarfélagsins, sem og öðrum, er bent á að kynna sér nýju heimasíðuna og nota hana framvegis til að sækja sér upplýsingar eða þjónustu er varðar sveitarfélagið.

Gömlu heimasíður sveitarfélaganna verða áfram opnar en fyrir liggur að taka ákvörðun um framtíð þeirra.

Heimasíða fyrir Múlaþing
Getum við bætt efni þessarar síðu?