Stjórn og starfsfólk Lánasjóðs sveitarfélaga komu á fund byggðaráðs Múlaþings þriðjudaginn 22. september 2026 og kynntu starfsemi sjóðsins fyrir byggðaráði.
Lánasjóður sveitarfélaga er í eigu sveitarfélaga landsins og veitir sveitarfélögum og stofnunum þeirra lán til fjárfestinga og verkefna. Fulltrúar sjóðsins ferðast reglulega um landið og funda með fyrirsvarsmönnum sveitarfélaga um stöðu mála.
Á fundinum fóru þeir yfir starfsemi sjóðsins og sköpuðust góðar umræður milli þeirra og byggðaráðs.