Félagsheimilið Herðubreið á Seyðisfirði hefur fengið talsverða endurnýjun og andlitslyftingu undanfarið.
Búið er að klæða allt húsið að utan og skipta um glugga og hurðar. Verkið gekk mjög vel, en það hófst haustið 2024 og fór lokaúttekt fram í nóvember síðastliðnum.
Að verkinu komu Eðalmenn ehf. og Verkráð ehf. og er þeim þakkað fyrir gott samstarf.
Þessu til viðbótar er búið að yfirfara allar brunavarnir í húsinu og er það verkefni langt komið.