Hoppubelgurinn í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum er því miður bilaður og verður ekki blásinn upp fyrr en viðgerð hefur farið fram.
Viðgerðin er nokkuð viðamikil því hún felst í því að grafa frá belgnum og strengja hann niður aftur svo hann haldi lofti og því er ekki líklegt að hann komist í gang alveg á næstunni.
Fjölskyldum er bent á að hoppubelgir eru víða í sveitarfélaginu og kjörið að prófa til dæmis belgina á Seyðisfirði, Fellabæ, Brúarási, Djúpavogi og Borgarfirði á meðan belgurinn í Tjarnargarðinum er bilaður.