Fara í efni

Höttur afhenti Múlaþingi lyklana að Fellahúsi

19.03.2026 Fréttir

Fellahúsið við Fellavöll var vígt í lok síðasta mánaðar og við tilefnið var haldin athöfn til að fagna þessum mikilvæga áfanga.

Við athöfnina afhenti Smári Þórhallsson formaður byggingarfélags Hattar og knattspyrnudeildar félagsins aðstöðuna formlega til sveitarfélagsins en Jónína Brynjólfsdóttir forseti sveitarstjórnar tók við þeim. Jónína fór yfir mikilvægi þess að eiga gott samstarf við íþróttahreyfinguna og að í þessu verkefni hefði sveitarfélagið sannarlega fengið margfalt til baka þá fjármuni sem settir voru í verkefnið. “Þessi mikli kraftur og samstaða um verkefnið er okkur öllum innblástur um að halda áfram að vinna saman að frekari uppbyggingu íþróttamannvirkja.”

Smári fór yfir sögu verkefnisins og mikilvægi þess. Fyrsta skrefið var að endurnýja gervigrasið á vellinum sjálfum og í framhaldinu var farið í stækkun á Fellahúsinu og þar með var aðstaðan fyrir iðkendur og aðstandendur stórbætt. Þá er enn mikilvægur hluti uppbyggingarinnar eftir en það er að reisa 300 manna stúku við völlinn. Stúkan hefur verið keypt og á eingöngu eftir að setja hana upp.

Múlaþing setti 130 milljónir í endurnýjun á gervigrasinu á vellinum sem og lagfæringar í kringum hann. Þá fékkst rúmlega 31 milljóna styrkur frá KSÍ sem gerði það að verkum að hægt var að bæta efri hæðinni á Fellahúsið, koma upp sjoppu og kaupa áhorfendastúku. Án styrksins frá KSÍ og mikillar sjálfboðavinnu og afslátta frá verktökum hefði aldrei verið hægt að koma svona miklu í verk. Þegar sjálfboðavinnan og afslættirnir eru teknir inn í myndina má áætla að hægt sé að meta framkvæmdirnar á ríflega 200 milljónir.

Í verkefninu kristallast mikilvægi samvinnu og samtakamáttar nærsamfélagsins og íþróttahreyfingarinnar.

Tímasetning á athöfninni var í tengslum við Ársþing KSÍ sem fram fór í Valaskjálf þann dag og voru því sérstakir heiðursgestir við athöfnina þeir Elkhan Mammdov frá FIFA, Armand Duka, varaforseti UEFA, Denis Bastari frá UEFA, Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ, Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ og fleiri góðir gestir.

Sveitarfélagið óskar íbúum og íþróttafélaginu Hetti til hamingju með þennan mikilvæga áfanga og þakkar um leið öllum sem hafa lagt hönd á plóg með vinnu, efni eða öðrum leiðum til þess að verkefnið hafi orðið að veruleika.

Mynd: Gunnar Gunnarsson
Mynd: Gunnar Gunnarsson
Getum við bætt efni þessarar síðu?