Fara í efni

Hreinsunarátak í Múlaþingi

02.06.2023 Fréttir

Á tímabilinu 12. júní til 14. júlí verða settir upp gámar á völdum svæðum í dreifbýli í nokkra daga fyrir hvert svæði. Býðst bændum að hreinsa til hjá sér og henda rusli í gámana sér að kostnaðarlausu. Tveir gámar verða á staðnum, grófur úrgangur og brotajárn en leyfilegt er að setja dekk með brotajárninu.

Eftirfarandi tímabil verða í boði á hverju svæði:

12. til 16. júní
Hamarsfjörður/Álftafjörður og Berufjörður

Hamarsfjörður/Álftafjörður – Á aurunum við Hofsá
Berufjörður – plan við malarnámu hjá Bauluhvammi

19. til 22. júní
Skriðdalur og Vellir

Vellir – Iðavellir bílaplan

Skriðdalur – Plan við Jóku

26. til 29. júní
Hjaltastaðaþinghá/Hróarstunga og Borgarfjörður – sveit

Hjaltastaðaþinghá/Hróarstunga – Lagarfossvirkjun
Borgarfjörður – Plan rétt hjá sorpsöfnunarstað

3. til 7. júlí
Seyðisfjörður – sveit og Eiðaþinghá

Seyðisfjörður – Túnin á móti Kúahaga (Fjörður)
Eiðaþinghá – Eiðaskóli

 10. til 14. júlí
Jökuldalur/Jökulsárhlíð/Hróarstunga og Fell

Jökuldalur/Jökulsárhlíð/Hróarstunga – Brúarásskóli
Fell – Ormarsstaðarétt

Fyllist gámur með grófum úrgangi þarf að heyra í Íslenska Gámafélaginu í síma 577 5757 og láta vita.
Fyllist gámur með brotajárni og dekkjum þarf að heyra í Herði hjá Hringrás í síma 773 1029 og láta vita.

Hreinsunarátak í Múlaþingi
Getum við bætt efni þessarar síðu?