Fara í efni

Hreinsunarátak Múlaþings 2021

26.05.2021 Fréttir

Eigendum bíla og stærri málmhluta í þéttbýli á Djúpavogi, Egilsstöðum og í Fellabæ, í dreifbýli og þéttbýli á Borgarfirði, dreifbýli og þéttbýli á Seyðisfirði og í Eiða- og Hjaltastaðaþinghá, býðst aðstoð við að færa þá til förgunar, eigendum að kostnaðarlausu.

Í ár einskorðast tilboðið við áður tilgreinda hluta sveitarfélagsins, en stefnt er á að öðrum íbúum sveitarfélagsins verði síðar gert sama tilboð.

Ef áhugi er á að nýta tilboðið þarf að láta vita af því fyrir 11. júní á netfangið freyr.aevarsson@mulathing.is með upplýsingum um hvað á að fjarlægja, hvar það stendur og hver er eigandinn.

Hreinsunarátak Múlaþings 2021
Getum við bætt efni þessarar síðu?