Fara í efni

Hugmyndarík ungmenni fengu kynningu á styrkjum

12.03.2021 Fréttir

Fjöldi ungmenna sótti fyrirlestur á vegum Erasmus+ þar sem kynntir voru margskonar styrkir sem standa ungmennum til boða. Kynningin fór fram í þremur félagsmiðstöðvum í einu; Í Nýung á Egilsstöðum og í gegnum fjarfundarbúnað í Zíon á Djúpavogi og Lindinni á Seyðisfirði.

„Svo margir möguleikar í boði“

„Það sem heillaði mig mest af því sem kynnt fyrir okkur var sennilega hvað þau eru að styrkja mikið af utanlandsferðum fyrir ungmenni,“ sagði Guðrún Lára Einarsdóttir, varaformaður Ungmennaráðs Múlaþings, eftir fundinn.

„Það eru svo margir möguleikar í boði, til dæmis ólík sjálfboðaliðastörf víðsvegar í heiminum og svo ungmennaskiptaverkefni þar sem við gætum búið til hóp hér á Egilsstöðum til dæmis, farið með hann eitthvert til útlanda að hitta önnur ungmenni og fræðst um lífið þeirra þar. Seinna mynd þau sem við hittum svo koma hingað austur til okkar,“ segir Guðrún Lára. „Það hljómar mjög skemmtilega og er pottþétt mjög lærdómsríkt.“

Meiri upplýsingar um styrki Erasmus+ má nálgast hér.

Hugmyndarík ungmenni fengu kynningu á styrkjum
Getum við bætt efni þessarar síðu?