Múlaþing og HAUST standa saman að átaksverkefni þar sem lóðarhafar iðnaðar- og athafnalóða eru hvattir til að nýta sumarið til að fara yfir lóðir sínar og sinna tiltekt og umhirðu þar sem þörf er á.
Margir lóðarhafar eru nú þegar til fyrirmyndar þegar kemur að umgengni og umhirðu. Þeim eru færðar bestu þakkir fyrir að leggja sitt af mörkum og setja gott fordæmi.
Liður í átaksverkefninu var að senda hvatningarbréf til viðkomandi aðila í upphafi sumars í gegnum stafrænt pósthólf á island.is.
Markmið verkefnisins er að stuðla að snyrtilegri og aðlaðandi ásýnd atvinnu- og athafnasvæða í sveitarfélaginu. Oft þarf ekki mikið til, með því að fjarlægja ónýta eða ónotaða muni og skipuleggja geymslu lausamuna betur má gera gott umhverfi enn betra.
Samhliða er bent á að sækja þarf um stöðuleyfi fyrir gáma sem standa eiga lengur en tvo mánuði, nema þar sem skipulögð gámasvæði eru fyrir hendi.
Snyrtilegar og vel umgengnar lóðir hafa jákvæð áhrif á ásýnd sveitarfélagsins og skapa betra og notalegra umhverfi fyrir íbúa, gesti og atvinnurekendur. Í nýju Aðalskipulagi Múlaþings er sérstaklega kveðið á um að atvinnu- og athafnasvæði skuli vera aðlaðandi og vel hirt.
Meðferð úrgangs
Til að auðvelda tiltektina er vakin athygli á árlegri brotajárnssöfnun Múlaþings í ágúst sem lóðarhafar geta nýtt sér að kostnaðarlausu. Í ár fer söfnunin fram á svæði 2, en undir það falla Egilsstaðir, Fellabær, Jökuldalur, Fell, Skriðdalur og Vellir.
Auk þess er auðvelt að skila fjölmörgum úrgangsflokkum gjaldfrjálst á söfnunar- og grenndarstöðvum sveitarfélagsins. Undir slíkan úrgang falla til dæmis plastumbúðir, pappi og pappír, málmar, glerumbúðir, raftæki, spilliefni og bílhræ.
Saman gerum við gott umhverfi enn betra
Öll geta lagt sitt af mörkum til að gera nærumhverfið snyrtilegra og notalegra. Með sameiginlegu átaki og góðri umgengni getum við áfram byggt upp hreint, snyrtilegt og aðlaðandi Múlaþing þar sem gott er að búa og starfa.
Fyrir frekari upplýsingar, leiðbeiningar eða aðstoð er hægt að senda tölvupóst á mulathing@mulathing.is eða hafa samband í síma 4 700 700.
Nánari upplýsingar má finna undir viðeigandi hlekkjum hér að neðan: