Fara í efni

Íbúafundur á Bragðavöllum

21.10.2022 Fréttir Djúpivogur

Heimastjórn Djúpavogs boðar til íbúafundar á Bragðavöllum miðvikudaginn 26. október klukkan 20:00 - 22:00.
Þar munu fulltrúar í heimastjórn verða með stutt ávörp og svara síðan spurningum. Fundurinn er einkum ætlaður íbúum í dreifbýlinu við Hamarsfjörð og Álftafjörð, þótt allir séu að sjálfsögðu velkomnir.

Íbúar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum.

Heimastjórn Djúpavogs.

Íbúafundur á Bragðavöllum
Getum við bætt efni þessarar síðu?