Heimastjórn Seyðisfjarðar verður með íbúafund 29. apríl næstkomandi. Fundurinn fer fram í Herðubreið klukkan 16:30.
Dagskrá:
- Atvinnumál (Dagmar Ýr sveitarstjóri og gestir)
- Staða verkefna á umhverfis- og framkvæmdasviði (Hugrún Hjálmarsdóttir)
- Önnur mál
Fundarstjóri verður Jónína Brynjólfsdóttir formaður heimastjórnar.
Sem flest eru hvött til að mæta og taka þátt í umræðum.
Kaffi og kruðerí á boðstólum.