Byggðaráð Múlaþings boðar til íbúafundar á Egilsstöðum til að ræða stöðuna sem upp er komin vegna mögulegra breytinga á notkun samkomusalar í Valaskjálf.
Mikið vatnstjón varð á samkomusalnum í sumar sem kallar á miklar framkvæmdir. Eigendur hússins hafa lýst yfir áhuga á að breyta notkun rýmisins og nýta það til að fjölga gistirýmum á hótel Valaskjálf. Samtal hefur verið í gangi milli eigenda og fulltrúa sveitarfélagsins um mögulega aðkomu þess til að hægt sé að halda salnum áfram í þeim rekstri sem hann hefur verið í fram að þessu. Byggðaráð vill upplýsa áhugasama íbúa um stöðu málsins og eiga við þá beint samtal áður en endanleg ákvörðun verður tekin um næstu skref.
Fundurinn mun fara fram í Sláturhúsinu menningarmiðstöð á Egilsstöðum, sunnudaginn 6. september klukkan 18:00.