Fara í efni

Íbúar og gestir eru beðnir um að fara sparlega með vatn á Hallormsstað

17.07.2026 Fréttir Egilsstaðir

Vegna mikillar veðurblíðu, sem sér ekki fyrir endann á, dvelja margir í Hallormsstað þessa dagana. Mikið álag er því á vatnsveitunni á Hallormsstað. Brunndælur eru því farnar að erfiða við að standa undir eftirspurninni. Því eru íbúar og gestir beðnir að fara sparlega með vatn næstu dagana.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Íbúar og gestir eru beðnir um að fara sparlega með vatn á Hallormsstað
Getum við bætt efni þessarar síðu?