Innanhússframkvæmdum við slökkviliðsstöð sveitarfélagsins á Djúpavogi er nú lokið og full starfsemi aftur kominn í stöðina. Verktakafyrirtækið Straumbrot ehf. var verktaki verksins.
Mikilvægt var að tryggja að hægt væri að aka nýjum slökkviliðsbíl inn í stöðina fullbúnum, án þess að fjarlægja búnað af bílnum. Af þeim sökum var lögð sérstök áhersla á innanhússframkvæmdir með breyttri lofthæð, aðgengi og akstursrými.
Verkið fólst meðal annars í breytingum á aksturs- og tækjarými, uppfærslu innra skipulags, innanhússmálningu og almennum endurbótum á aðstöðu fyrir búnað og mannskap. Með þessum breytingum hefur starfsaðstaða batnað til muna og viðbragðsgeta styrkst þar sem unnt er að halda tækjum og bifreiðum fullbúnum og tilbúnum til útkalls.
Á næstu misserum er fyrirhugað að ljúka frágangi hússins að utan, þar með talið endanlegum yfirborðsfrágangi og lóðarvinnu, svo slökkviliðsstöðin geti orðið til sóma að innan sem utan.
Sveitarfélagið þakkar öllum þeim sem komu að verkefninu fyrir gott samstarf við framkvæmdina.

Fyrir framkvæmdir

Eftir framkvæmdir

Eftir framkvæmdir