Nú fer senn að líða að því að hin árlega listahátíð VOR / WIOSNA fari fram og það í sjötta sinn.
Hátíðin var stofnuð til þess að skapa vettvang fyrir pólska listamenn á Íslandi og til þess að kynna pólska menningu fyrri breiðari hópi. Hátíðin á þannig að gefa þeim rödd sem oft finna sig í listrænu "mitt á milli", milli landa, tungumála og menningarheima.
Aðalsýning þessa árs, sem ber titilinn „Migration is life “ kannar margþætta reynslu af landflótta, það er efnahagslega, pólitíska og sögulega reynslu fólks.
Meðal listamanna eru alþjóðlega viðurkennd nöfn eins og ljósmyndarinn Rafał Milach / A.P.P ( The Archive of Public Protest ) sem skráir með ljósmyndum sínum mótmæli gegn harðlínustefnu Póllands í innflytjendamálum, ljósmyndarinn Bart Urbański, en verk hans greina á gagnrýninn hátt birtingarmynd pólskra innflytjenda í breskum fjölmiðlum ásamt því sem hann hefur myndað póslka innfleytjendur á Íslandi, Andrii og Lia Dostliev eru úkraínskir listamenn sem voru fulltrúar Úkraínu á Feneyjatvíæringnum 2024. Verk þeirra, Comfort Work, setur spurningarmerki við sótthreinsaðar, vestrænar frásagnir um flóttamenn. Síðast en ekki síst er Dr. Zofia Nierodzińska í mánaðarlangri residensíu í Sláturhúsinu þar sem að hún vinnur málverk sem sækir innblástur í samfélag og aðstæður pólskra innflytjenda á Íslandi.
Sjónrænt útlit hátíðarinnar er hannað af listakonunni og grafíska hönnuðinum Kaja Kusztra.
Síðast en ekki síst er Dr. Zofia Nierodzińska í mánaðarlangri residensíu í Sláturhúsinu þar sem að hún vinnur málverk sem sækir innblástur í samfélag og aðstæður pólskra innflytjenda á Íslandi.
Hátíðin er einn af fáum árlegum menningarviðburðum á Íslandi sem helgaður er listrænni tjáningu innflytjenda. Hátíðin byggir brýr milli tungumála, landamæra og kynslóða.
Wiola Ujazdowska sýningastjóri segir: "Flutningar eru lífið - óreiðukennt og grimmt, en líka fullt af fegurð, von og samfélagi. Eftir tíu ára eigin reynslu af fólksflutningum tel ég að það sé kominn tími til að við búum til rými þar sem raddir farandfólks heyrast skýrt og án afsökunar."
Sýningin opnar 3. maí klukkan 15:00 og stendur til 25. maí. Íbúar og gestir sveitarfélagsins eru hvattir til að nýta tækifærið og kíkja á þessa flottu sýningu.