Fara í efni

Íþróttamiðstöðin lokar vegna viðhalds

21.05.2026 Fréttir Egilsstaðir

Þann 2. júní mun Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum þurfa að loka dyrum sínum fyrir íbúum og öðrum gestum þar sem til stendur að fara í viðhaldsvinnu fyrir sumarið.

Íþróttaiðkendur og sólarþyrstir sundlaugagestir geta þó tekið gleði sína á ný mánudagsmorguninn 8. júní en þá verður opnað aftur og hægt verður að nýta sér aðstöðuna samkvæmt venjulegum opnunartíma.

Þessa sex daga sem lokað er verður lokað fyrir alla aðstöðu Íþróttamiðstöðvarinnar, það er íþróttahúsið, Héraðsþrek og sundlaugina.

Um er að ræða árlega lokun þar sem sundlaugin er tæmd og hreinsuð, farið er í ýmiskonar þrif og lagfæringar innan húss og utan. Þá á að leggja hellur í sundlaugargarðinum og skipta um brotnar rúður. Starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar nýtir tímann á meðan og situr skyndihjálparnámskeið.

,,Verkefnalistinn er langur og þarfur en það verður gaman að taka á móti gestum aftur 8. júní þegar viðhaldi verður lokið og Íþróttamiðstöðin hefur fengið sína árlegu andlitslyftinu fyrir sumarið.“ sagði Guðmundur Birkir Jóhannsson forstöðumaður Íþróttamiðstöðvarinnar.

Íbúar og aðrir gestir eru hvattir til að nýta sér aðra aðstöðu í nærumhverfinu og kíkja jafnvel í sund í öðrum kjörnum fjórðungsins. Þá er tilvalið að njóta þess að fá sér göngutúr nú þegar allt er tekið að grænka.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa.

Íþróttamiðstöðin lokar vegna viðhalds
Getum við bætt efni þessarar síðu?