HEF veitur áætla að fara í jarðhitaborun á Seyðisfirði á næstu vikum. Valinn hefur verið staður fyrir borholu skammt frá Dagmálalæk fyrir neðan skógræktarsvæði Skógræktarfélagsins.
Undirbúningur á svæðinu hefst í vikunni en efni verður borið í slóða og borplan undir bortækin. Borbræður koma svo með borinn sinn Árna þegar undirbúningi er lokið. Borframkvæmdin sjálf myndi taka 2-4 vikur.
Framkvæmdinni fylgir tilheyrandi hávaði á svæðinu og nokkur fjöldi vinnuvéla og tækja fylgir framkvæmdinni. Unnið verður að borun milli klukkan 8 og 19 virka daga.
Sjá frétt á vef HEF veitna: Borun í leit að varmagjafa á Seyðisfirði | HEF veitur