Fara í efni

Jólabækur, "Róvember" og fjölbreyttir viðburðir á Bókasafni Múlaþings

06.11.2026 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Jólabækurnar streyma inn á allar starfsstöðvar Bókasafns Múlaþings þessa dagana en það er ekki eina ástæðan til að gera sér ferð þangað því framundan er fjöldi fjölbreyttra viðburða fyrir alla fjölskylduna. 

Róvember, friður og ró í nóvember.

Sem mótvægi við afsláttardaga og vaxandi streitu í aðdraganda jóla efna söfnin í Safnahúsinu á Egilsstöðum til viðburðaraðarinnar Róvember – lestrarfriður og baðstofustemning fyrir fullorðna.

Þriðjudagana 10. og 24. nóvember bjóða söfnin upp á lengri opnun fyrir fullorðna frá klukkan 18:00 til 22:00. Þar gefst fullorðnum kostur á að eiga rólega stund á bókasafninu við lestur eða spil og í anddyri hússins er hægt að tylla sér með hannyrðir og hlýða á húslestur án áreitis vegna afsláttardaga og jólaundirbúnings.

Í tengslum við Róvember verður einnig boðið upp á hádegisjóga í Bókasafni Múlaþings á Egilsstöðum þessa sömu daga á milli 12:10 og 12:50. Agnes Brá Birgisdóttir jógakennari leiðir og áhersla verður lögð á mjúkar teygjur með stuttri slökun í lokin. 

Vélstjórinn frá Aberdeen - upplestur og kynning á Seyðisfirði:

Fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 17:00 kemur rithöfundurinn Ásgeir Hvítaskáld í heimsókn á Bókasafn Múlaþings á Seyðisfirði. Þar mun Ásgeir mun lesa upp úr nýútkominni bók sinni „Vélstjórinn frá Aberdeen“ og segja frá rannsóknarvinnunni á bak við hana en bókin er byggð á sönnum atburðum.

Lestarstundir, sögustundir við varðeld, jólasamvera og fleira

Í haust hefur verið boðið upp á sögustundir við varðeld á öllum starfsstöðvum bókasafnsins í samstarfi við Náttúruskólann og enn eru tvær slíkar eftir á Egilsstöðum. Þá eru einnig reglulegar lestrarstundir fyrir yngstu börnin. Framundan eru svo jólasamvera í Safnahúsinu, heimsókn frá barnabókahöfundi og ýmislegt fleira. Hægt er að fylgjast með viðburðahaldi Bókasafns Múlaþings á facebook síðu þess og í viðburðadagatali á vef Múlaþings.

Jólabækur,
Getum við bætt efni þessarar síðu?