Rauði krossinn, Þjóðkirkjan, AFL starfsgreinafélag, Lionsklúbburinn Múli og Lionsklúbburinn á Seyðisfirði standa í sameiningu að Jólasjóði sem starfræktur er í samvinnu við Félagsþjónustu Múlaþings. Sjóðurinn styrkir fjölskyldur og einstaklinga í Múlaþingi sem búa við þröngan kost og léttir þannig undir fyrir jólahátíðina.
Sótt er um í sjóðinn rafrænt og hægt er að nálgast tengil á umsókn inni á heimasíðu Múlaþings, á heimasíðum þeirra sem að sjóðnum standa eða með því að hafa samband við Félagsþjónustu Múlaþings, sem einnig veitir nánari upplýsingar.
Hægt er að styrkja sjóðinn með því að leggja inn á reikning númer 0175 15-380606 og kennitölu 530505-0570.
Söfnunarreikningurinn er í nafni Safnaðarsamlags Egilsstaðaprestakalls (ekki er tekið við gjöfum eða mat).
Þeim sem styrkt hafa sjóðinn síðustu ár, er þakkað kærlega fyrir stuðninginn.