Fara í efni

Jólatölublað Bóndavörðunar

06.12.2023 Fréttir Djúpivogur

Jólatölublað Bóndavörðunar læddi sér inn um lúgur áskrifenda á dögunum. Um er að ræða 23. útgáfu af þessu veglega og skemmtilega blaði. 
Jólablaðið er sneisafullt af skemmtilegum fróðleik en má þar með nefna ferðasögur frá Galisíu, uppskriftir af hreindýrasteik, viðtöl, ljóð, jólakveðjur, framtíðaráform heimastjórnar og upprifjun liðinna viðburða á árinu á Djúpavogi.

Við hvetjum áhugasama til að lesa blaðið HÉR í vefútgáfu. 

 

Bóndavarðan er staðarblað Djúpavogs og hefur verið gefið út af sveitarfélaginu síðan 2010. Þar á undan var Bóndvarðan gefin út af Grunnskóla Djúpavogs og var fréttablað skólans.

Í Bóndavörðunni eru greinar um allt milli himins og jarðar, ferðasögur, viðtöl, myndir og margt sem verið er að brasa á Djúpavogi eða af Djúpavogsbúum.

Hægt er að vera áskrifandi af blaðinu sem kemur að jafnaði út tvisvar á ári. Einnig er velkomið að senda inn greinar í blaðið hvaðan sem er. Ef þú vilt senda inn grein eða gerast áskrifandi er bent á að senda póst á ritstjóra Bóndavörðunnar

Bóndavarðan dregur nafn sitt af vörðu sem stendur við Djúpavog og er talin eiga uppruna sinn til Tyrkjaránsins 1627.

Jólatölublað Bóndavörðunar
Getum við bætt efni þessarar síðu?