Fara í efni

Jólatréð á Djúpavogi tendrað 3.desember

28.11.2023 Fréttir Djúpivogur

Ljósin á jólatrénu á Djúpavogi verða tendruð fyrsta sunnudag í aðventu þann 3.desember kl. 17:00 á Bjargstúni og mun grunnskólanemi kveikja ljósin venju samkvæmt. 

Tendrun jólatrés hefur verið hefð á Djúpavogi árum saman þegar íbúar koma saman og syngja og dansa í kringum jólatréð. Jólasveinar hafa átt það til að standast ekki gleðskapinn og kíkja jafnvel snemma til byggða með sitthvað í pokahorninu. 

Jólatréð á Djúpavogi tendrað 3.desember
Getum við bætt efni þessarar síðu?