Fara í efni

Karabíski þrællinn sem varð verslunarstjóri á Djúpavogi

05.07.2021 Fréttir

Þann 10. júlí næstkomandi verður listaverkið Frelsi afhjúpað á Djúpavogi en verkið er gjöf frá ríkisstjórn Íslands, Fiskeldi Austfjarða og hlutabréfseigendum verksins.

Með verkinu Frelsi vonast sveitarfélagið Múlaþing til að persónu Hans Jónatans, afkomenda hans á Íslandi og sögu þrælanna, sem knúðu fram réttlætið, verði minnst.

 

En hver var Hans Jónatan?

Karabíski þrællinn sem varð verslunarstjóri á Djúpavogi

Fæddur: 5. júlí 1784 á Constitution Hill á Dönsku Jómfrúareyjunni St. Croix.

Dáinn: 18. desember 1824 í Borgargarði, Djúpavogi.

Leysinginn, Hans Jónatan, tengir Ísland sterkari böndum en nokkur annar við sögu þrældóms á síðustu öldum. Hann var fæddur í þrældóm því móðir hans, Emilía Regína, var ambátt ættuð frá Afríku, faðirinn var hvítur, líklega danskur. Sjö ára að aldri var Hans Jónatan fluttur til Kaupmannahafnar á heimili eigenda sinna Schimmelmannhjónanna, sem þá voru flutt til Danmerkur frá St. Croix. Hann gat sér gott orð í orrustunni um Kaupmannahöfn árið 1801 og barðist sem háseti um borð í skipinu Charlotte Amalie. Fyrir vasklega framgöngu fékk Hans Jónatan loforð Friðriks, krónprins Dana, um lausn úr ánauð sinni. Það dugði þó ekki til. Eigandi hans höfðaði sögulegt mál til að staðfesta eign sína á Hans Jónatan og vann málið. Hans Jónatan sætti sig ekki við niðurstöðuna, kaus frelsi og strauk árið 1802. Hann settist loks að á Djúpavogi þar sem hann gegndi verslunarstörfum og gerðist bóndi.

Íslendingar tóku Hans Jónatan vel og hann reyndist góður þegn. Ekkert bendir til að hann hafi liðið fyrir dökkan hörundslit eða uppruna sinn í þrældómi. Afkomendur Hans Jónatans og eiginkonu hans, Katrínar Antoníusdóttur frá Hálsi í Hamarsfirði, hafa dreifst um allan heim og teljast nú um eitt þúsund. Hans Jónatan var fyrsti blökkumaðurinn sem settist að á Íslandi.

Afkomendur Hans Jónatans hafa haldið hópinn og hisst á ættarmótum reglulega. Einnig settu þau saman ættarvef þar sem finna má fjölmargar heimildir, sögur og myndir um Hans Jónatan, sögu hans og afkomendur. Heimildir þessar fréttar eru fengnar þaðan og frá Helga Má Reynissyni, afkomanda Hans Jónatans.

 

Verkið verður afhjúpað af forsætisráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, laugardaginn 10. júlí kl. 14:30 við Löngubúð á Djúpavogi.

 

Afkomendur Hans Jónatan. Mynd fengin af ættarvef Hans Jónatans
Afkomendur Hans Jónatan. Mynd fengin af ættarvef Hans Jónatans
Getum við bætt efni þessarar síðu?