Laugardaginn 30. ágúst klukkan 15:00 stendur Minjasafn Austurlands fyrir stuttri dagskrá í Kjarvalshvammi í Hjaltastaðaþinghá þar sem nýlegum endurbótum á sumarhúsi og bátaskýli Jóhannesar S. Kjarvals og endurbættum upplýsingaskiltum við nýtt bílastæði og göngustíg verður fagnað.
Viðburðurinn er hluti af Menningarminjadögum Evrópu en þema þeirra í ár er Byggingararfurinn – í fortíð og framtíð. Þá er þess minnst að í ár eru 50 ár liðin frá Evrópska húsverndarárinu 1975 en það markaði upphaf húsafriðunarsjóðs sem styrkt hefur endurbætur á húsakosti í Kjarvalshvammi.
Þau sem leggja leið sína í Kjarvalshvamm geta hlýtt á stutt erindi Þuríðar Elísu Harðardóttur minjavarðar Austurlands um húsin í hvamminum og gildi þeirra í menningarsögulegu tilliti, auk þess sem Elsa Guðný Björgvinsdóttir deildarstjóri menningarmála hjá Múlaþingi og fyrrum safnstjóri Minjasafns Austurlands segir frá þeim endurbótum sem gerðar hafa verið á liðnum árum. Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþings fjallar um gildi staða eins og Kjarvalshvamms fyrir sveitarfélög, auk þess sem Björn Sveinsson, barnabarn Björns Guttormssonar bónda á Ketilsstöðum, les úr bréfum Kjarvals til Björns en hann gaf listamanninum þessa spildu úr landi sínu fyrir sumarhús. Það var eina húsið sem Kjarval kallaði „sitt“ um ævina.
Kvenfélagið Björk í Hjaltastaðaþinghá sér um veitingar fyrir gesti.
Nánari upplýsingar veitir Björg Björnsdóttir (bjorg@minjasafn.is) safnstjóri Minjasafns Austurlands í síma 892 8865.