Verið er að framkvæma könnun sem er liður í undirbúningi fyrir opnun geðræktar- og virknimiðstöðvar á Austurlandi sem gengur undir vinnuheitinu: Samkomuhús.
Verkefnið er samstarf Austurbrúar, Heilbrigðisstofnunar Austurlands, Starfsendurhæfingar Austurlands og félagþjónustu Fjarðabyggðar og Múlaþings, unnið fyrir styrk úr Alcoa Foundation. Austurbrú fjallaði um verkefni á heimasíðu sinni í síðasta mánuði.
Fyrirhugað er að hefja tilraunastarfsemi haustið 2025 á tveimur stöðum á Egilsstöðum og Reyðarfirði.
Til þess að mæta þörfum þeirra sem hafa áhuga og þörf á að nýta sér slíkt úrræði er nauðsynlegt að fá innlegg og hugmyndir sem auka líkurnar á því að vel takist til. Því er óskað eftir svörum frá íbúum Austurlands og sérstaklega þeim sem sjá fyrir sér að nýta úrræðið.
Á undirbúningsstiginu verður einnig rætt við líklega notendur með því að setja saman 6-8 manna rýnihópa í Fjarðabyggð og í Múlaþingi, áhugasamir um þátttöku í slíku samtali mega gjarnan hafa samband við Tinnu Halldórsdóttur, verkefnisstjóra hjá Austurbrú, eða sinn tengilið hjá samstarfsaðilum verkefnisins.
Unnið verður með svörin sem eina heild og engin svör rakin til einstaklinga. Svörun tekur að meðaltali 2-5 mínútur.