Sveitarstjórnar- og heimastjórnarkosningar fara fram næstkomandi laugardag 16. maí 2026. Kjörstaðir verða sem hér segir:
- Borgarfjörður eystri: Grunnskólinn á Borgarfirði. Frá klukkan 09:00 til klukkan 17:00
- Djúpivogur: Tryggvabúð Djúpavogi. Frá klukkan 10:00 til klukkan 18:00
- Fljótsdalshérað: Menntaskólinn á Egilstöðum. Frá klukkan 09:00 til klukkan 22:00
- Seyðisfjörður: Íþróttamiðstöðin á Seyðisfirði. Frá klukkan 10:00 til klukkan 22:00
Kjördeildir við sveitarstjórnarkosningarnar verða fimm talsins, tvær á Egilsstöðum vegna Fljótsdalshéraðs en ein í hverjum hinna þriggja byggðarkjarnanna. Kjördeildirnar á Fljótsdalshéraði skiptast þannig: Í kjördeild nr. 1 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum A til og með bókstafnum M. Í kjördeild 2 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur hverra nöfn byrja á bókstafnum N – Ö, íbúar í Fellabæ, Eiðum og Hallormsstað og íbúar í dreifbýli á Fljótsdalshéraði.
Kjörgengir til heimastjórnar eru allir íbúar á kjörskrá í Múlaþingi, hver samkvæmt kjörskrá í sinni „heimasveit“, það er í hverju hinna eldri sveitarfélaga. Hver kjósandi kýs einn aðalmann í heimastjórn af kjörskrá í sinni „heimasveit“. Kjósandi skrifar á sérstakan kjörseðil fullt nafn og heimilisfang þess sem hann kýs. Til þess að fyrirbyggja tafir við atkvæðagreiðslu eru kjósendur hvattir til þess að kynna sér, áður en komið er á kjörstað, hvert er heimilisfang þess er hann hyggst kjósa í heimastjórn. Á heimasíðu Múlaþings er að finna nánari upplýsingar um heimastjórnir auk annars efnis er kosningarnar varðar.
Kjósendur eru minntir á að hafa persónuskilríki sín tiltæk á kjörstað.
Á kjördag, meðan atkvæðagreiðsla stendur yfir, mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur sitt á kjörstað í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Símanúmer yfirkjörstjórnar á kjördag eru 865-8954 (Stefán), 895-9972 (Björn), 863-3636 (Arna), tölvupóstfang til notkunar á kjördag: kjorstjorn@me.is
Talning atkvæða fer fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum og hefst að kjörfundi loknum.
Yfirkjörstjórn í Múlaþingi, 11. maí 2026.
Stefán Þór Hauksson, Arna Soffía Dal Christiansen, Björn Aðalsteinsson